Fara í efni

Laust starf í boði við félagslega stoð- og stuðningsþjónustu (liðveisla)

Mynd
Mynd "https://unsplash.com/@priscilladupreez

Félagsleg stoð- og stuðningsþjónusta (liðveisla) við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Hveragerðisbær leitar að starfsmönnum til að sinna félagslegri stoð- og stuðningsþjónustu (félagsleg liðveisla) við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Starfið felur í sér að veita félagslegan stuðning sem miðar einkum að því að rjúfa félagslega einangrun þjónustuþega og hefur það markmið að styðja og hvetja til þátttöku þeirra í félags- og tómstundastarfi o.fl.

Félagsleg stoð- og stuðningsþjónusta tekur mið af einstaklingsbundnum þörfum og miðar að valdeflingu og hvatningu til virkrar þátttöku í samfélaginu. Leitast er við að koma til móts við einstaklingsbundnar óskir og þarfir Þjónustuþega.

Starfsmönnum í Félagslegri stoð- og stuðningsþjónustu ber að hafa í heiðri trúnað í samskiptum við þjónustuþega og gæta þagmælsku um þau atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu.

Helstu verkefni og ábyrgð.

  • Að koma til mót við óskir þjónustuþega, sem geta verið bæði börn og fullorðnir einstaklingar, að félagslegri afþreyingu.
  • Að fylgja þjónustuþega og veita honum stuðning í félagsri afþreyingu. Félagsleg afþreying getur verið af ýmsum toga, má m.a. nefna göngutúra, bíóferðir, sundferðir, kaffihúsaferðir, spjall og félagsskapur o.m.fl.
  • Að hitta Þjónustuþega reglulega samkvæmt samningi og samþykktum klukkustundafjölda á mánuði.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Engar sérstakar menntunarkröfur.
  • Að hafa lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Samviskusemi, frumkvæði, áreiðanleiki.
  • Stundvísi og heiðarleiki.
  • Mælst er til að starfsmaður geti talað íslensku.
  • Að sýna þjónustuþega sínum og aðstandendum hans virðingu og skilning í samskiptum.
  • Að vera með hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Hveragerðisbæjar.
  • Gott að hafa þekkingu eða reynslu í vinnu með fólki með fatlanir.

Starfsmenn í félagslegri stoð- og stuðningsþjónustu fá tímavinnukaup frá Hveragerðisbæ og gilda launakjör samkvæmt kjarasamningum FOSS, Félagi opinberra starfsmanna á Suðurlandi.

Hægt er að senda umsókn í gegnum íbúagátt Hveragerðis. Einnig er hægt að senda umsókn á netfangið ninak@hveragerdi.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Nína Kjartansdóttir ráðgjafarþroskaþjálfi í síma 483-4000 eða í gegnum netfangið: ninak@hveragerdi.is


Síðast breytt: 10. nóvember 2023
Getum við bætt efni síðunnar?