Fara í efni

Skólastarf

Skólahald 7. 4 - 15. 4. 2021 - reglugerð heilbrigðisráðherra.

Starfsemi við Grunnskólann í Hveragerði er skipulögð í kringum reglugerð heilbrigðisráðherra 321/2021 sem gildir 25. mars 2021 og gildir til og með 15. apríl 2021. Grunnskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með 2 metra nálægðartakmörkunum milli starfsfólks.

  • Nemendur eru undanþegnir nálægðartakmörkun og grímuskyldu.
  • Hámarksfjöldi starfsmanna er 20 manns í rými og þeir mega fara milli rýma.
  • Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli og gagnvart nemendum en nota grímu ella.
  • Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.

Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 og blöndun milli hópa innan sama skóla er heimil.

MIKILVÆGT - Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til, þá beri þeir andlitsgrímur.

MIKILVÆGT - Skólamörk frá Reykjamörk er ekki ,,sleppistæði" frekar en áður. Aukinheldur er Skólamörk frá Reykjamörk ófær þessi misserin vegna framkvæmda.

Aðrir en starfsmenn sem koma inn í grunnskóla, svo sem kennarar tónlistarskóla, starfsfólk skólaþjónustu og vegna vöruflutninga, skulu bera andlitsgrímur.

  • Hádegismatur í matsal.
  • Hvorki er boðið upp á hafragraut né ávexti þennan tíma.
  • Salatbar lokaður.
  • Vatnsvélar eru ekki aðgengilegar þennan tíma.
  • Samlokugrill og örbylgjuofnar eru ekki í notkun þennan tíma.
  • Skipulag skóladagsins annars með hefðbundnum hætti.

Bestu kveðjur,
Sævar Þór

Nemendur og starfsfólk er áfram hvatt til að gæta að almennu hreinlæti, vönduðum handþvotti og notkun sótthreinsispritts.

 

 

 

Síðast breytt: 06.04.2021