Fara í efni

Íbúafundur vegna Aðalskipulags Hveragerðisbæjar 2024-2036

mynd: Landform
mynd: Landform

Þann 5. júní s.l. var haldinn vel sóttur íbúafundur í sal grunnskólans vegna heildarendurskoðunar Aðalskipulags Hveragerðisbæjar 2024-2036. Kynntu ráðgjafar aðalskipulagsnefndar afrakstur vinnu sinnar, sem staðið hefur yfir í um tvö ár. Var þetta seinni íbúafundur af tveimur lögbundum og var sá fyrri haldinn s.l. haust.

Markmið endurskoðunar aðalskipulags er að tryggja sem besta samfellu í þróun svæða innan bæjarmarka og að nýting og uppbygging innviða geti átt sér stað í takt við fjölgun íbúa. Auk íbúafjölgunar eru helstu forsendur endurskoðunar aðalskipulagins; breyting í atvinnumálum með aukna áherslu á ferða- og heilsutengda þjónustu, möguleiki á að koma háspennulínum innan bæjarmarka í jörð og áætlun um langþráða tilfærslu á Hringvegi.

Eftir ávarp Péturs Markan bæjarstjóra og inngang skipulagsfulltrúa kynntu ráðgjafar vinnu sína í eftirfarandi röð: Fyrst kynntu Landform landslagsarkitektar heildarendurskoðun aðalskipulags, þá voru samgöngumál sem VSB verkfræðistofa hefur staðið að kynnt og að lokum fóru arkitetkar Glámu-Kím yfir rammahluta aðalskipulags. Góðar umræður tóku við í lokin á milli viðstaddra og ráðgjafa.

Stefnt er á að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2024-2036 á næstu vikum.

Kynningar ráðgjafa er að finna hér.


Síðast breytt: 11. júní 2025
Getum við bætt efni síðunnar?