Fara í efni

Farsæld barna

Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna í Hveragerði

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt af Alþingi 22. júní 2021.

Meginmarkmið laganna er að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.

Samþætt þjónusta er skipulögð og samfelld þjónusta sem hefur það að markmiði að stuðla að farsæld barns og er veitt af þeim þjónustuveitendum sem eru best til þess fallnir að mæta þörfum barns hverju sinni.

TENGILIÐIR

Hlutverk tengiliðar er að:

  • Veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns.
  • Aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns.
  • Skipuleggja og fylgja eftir samþættingu þjónustu á fyrsta stigi.
  • Koma upplýsingum til sveitarfélagsins ef þörf er á að tilnefna málstjóra farsældar.
  • Taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á.

Áður en barn hefur skólagöngu er tengiliður farsældar á heilsugæslu:

Heilsugæslan í Hveragerði

Guðfinna Ýr Sumarliðadóttir, hjúkrunarfræðingur -  gudfinna.y.sumarlidadottir@hsu.is

 

Þegar börn hefja skólagöngu er tengiliður farsældar í viðeigandi skóla barns:

Leikskólinn Óskaland

Leikskólinn Undraland

Grunnskólinn í Hveragerði

 

Börn sem ekki eru í leikskóla, grunnskóla eða framhaldsskóla geta leitað til tengiliðar farsældar hjá félagsþjónustu Hveragerðisbæjar.

Félagsþjónusta Hveragerðisbæjar

 

Þjónusta í þágu farsældar barna skiptist í þrjú þjónustustig eftir eðli og umfangi þjónustuþarfar.

Tengiliður farsældar annast samþættingu þjónustu á fyrsta stigi. Þegar þörf er á samþættingu þjónustu á öðru eða þriðja stigi tilnefnir sveitarfélagið málstjóra farsældar.

Hlutverk málstjóra er að:

  • Veita foreldrum og börnum ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barna.
  • Aðstoða við að tryggja aðgang að mati og/eða greiningu á þörfum barns.
  • Stofna og stýra stuðningsteymi þeirra þjónustuveitenda sem koma að þjónustu barnsins.
  • Bera ábyrgð á gerð einstaklingsbundinnar stuðningsáætlunar í samstarfi við stuðningsteymið.
  • Fylgja því eftir að þjónusta sé veitt í samræmi við stuðningsáætlun og að hún sé endurmetin eftir þörfum.
  • Veita þeim sem sitja í stuðningsteymi ráðgjöf og upplýsingar um samþættingu þjónustunnar.

Málstjóri hefur ávallt hagsmuni barnsins að leiðarljósi og sinnir hlutverki sínu í samstarfi og samráði við foreldra og barn.

Almennt um samþættingu í þágu farsældar barna

Hverjir geta nýtt sér samþætta þjónustu?

Öll börn og fjölskyldur þeirra geta óskað eftir samþættingu þjónustu þegar þörf er á að samhæfa þjónustu frá fleiri en einum þjónustuveitanda.

Hvað er stuðningsteymi?

Þegar þjónusta barns er samþætt á öðru eða þriðja stigi er stofnað stuðningsteymi sem málstjóri farsældar leiðir.

Í teyminu sitja þeir þjónustuveitendur sem koma að þjónustu barnsins, ásamt foreldrum og barninu sjálfu, með hliðsjón af aldri þess og þroska.

Stuðningsteymið vinnur sameiginlega að stuðningsáætlun og fylgir henni eftir.

Hvað er stuðningsáætlun?

‍Stuðningsáætlun er skrifleg, einstaklingsbundin áætlun um samþætta þjónustu við barn á öðru eða þriðja þjónustustigi.

Stuðningsteymi vinnur áætlunina í samstarfi við foreldra og barn. Í henni koma meðal annars fram markmið, ábyrgð þjónustuveitenda og hvernig árangur verður metinn.

Stuðningsteymið fylgir áætluninni eftir og endurmetur hana eftir þörfum. Þegar ekki er lengur þörf á samþættingu þjónustu á öðru eða þriðja stigi getur teymið lokið störfum eða vísað málinu aftur til tengiliðar farsældar.

Áður en barn verður 18 ára skal stuðningsteymið gera áætlun um samþættingu þjónustu eftir að barnið nær fullorðinsaldri.

Stigskipting þjónustu

 

Hvað er stigskipting þjónustu?

Þjónusta í þágu farsældar barna skiptist í þrjú þjónustustig eftir eðli og umfangi þjónustuþarfar.

Það er þjónustan sem er stigskipt, ekki mál barnsins sjálft. Barn getur því fengið þjónustu á fleiri en einu stigi samtímis.

Markmiðið er að börn fái viðeigandi stuðning á réttum tíma, í samræmi við þarfir þeirra.

Nánari upplýsingar á vef Farsældar barna.

Hvað er 1. stigs þjónusta?

Fyrsta stig þjónustu felur annars vegar í sér grunnþjónustu og hins vegar einstaklingsbundinn og snemmtækan stuðning.

Grunnþjónusta er aðgengileg öllum börnum í ungbarnavernd, leik-, grunn- og framhaldsskólum. Grunnþjónustan skiptir miklu máli fyrir farsæld barna og með því að grípa snemma inn í getum við komið í veg fyrir ýmiss konar erfiðleika síðar meir.

  • Dæmi um góða grunnþjónustu er að leggja áherslu á forvarnir, aðgerðir gegn einelti og ofbeldi og aðgerðir sem styðja við jákvæðan skólabrag.

Einstaklingsbundinn og snemmtækur stuðningur á fyrsta stigi er veittur þegar barn þarf frekari aðstoð umfram grunnþjónustu. Markmiðið er að styðja við farsæld barnsins og koma í veg fyrir að erfiðleikar aukist.

  • Stuðningurinn byggir á frummati á þörfum barnsins og er fylgt eftir með markvissum hætti.
  • Sem dæmi má nefna stuðning vegna námsörðugleika, hegðunarvanda, afleiðinga eineltis eða annarra áfalla og vægra heilsufarslegra erfiðleika.

Hvað er 2. stigs þjónusta?

Á öðru stigi er veittur einstaklingsbundinn og markvissari stuðningur en sá sem veittur er á fyrsta stigi.

Til að tryggja farsæld barns eru úrræðin sérhæfðari og þjónustan fjölbreyttari.

Þjónusta á öðru stigi er veitt í samræmi við faglegt mat og/eða frumgreiningu á þörfum barnsins. Þörf fyrir þjónustu á öðru stigi getur komið fram þótt barn hafi ekki áður fengið stuðning á fyrsta stigi.

  • Þörfin fyrir þjónustu á öðru stigi getur til dæmis verið tilkomin vegna heilsufarslegra, félagslegra eða námslegra aðstæðna.
  • Má þar nefna sem dæmi sérdeildir eða starfsbrautir í skólum og ýmsa stuðningsþjónustu á vegum félags- og skólaþjónustu.

Leitast skal við að veita markvissari stuðning á grundvelli stuðningsáætlunar um samþætta þjónustu og eftirfylgni.

Hvað er 3. stigs þjónusta?

Á þriðja stigi er veittur einstaklingsbundinn og sérhæfðari stuðningur til að tryggja að farsæld barns verði ekki hætta búin.

Barn sem nýtur þjónustu á þessu stigi hefur að jafnaði flókinn og fjölþættan vanda og mikla umönnunarþörf.

Barnið er þá í aðstæðum þar sem skortur á viðeigandi stuðningi og úrræðum getur haft alvarlegar afleiðingar og ógnað heilsu þess og þroska.

Sérhæfðari stuðningur er veittur í samræmi við sérhæft og ítarlegt mat og/eða greiningu á þörfum barnsins. Leitast skal við að veita stuðninginn á grundvelli stuðningsáætlunar um samþætta þjónustu og eftirfylgni.

  • Má þar nefna sem dæmi vistunarúrræði á grundvelli barnaverndarlaga, umfangsmikinn og fjölþættan stuðning við fötluð börn og langvarandi sjúkrahúsdvöl barna.

Er hægt að samþætta þjónustu á 1. stigi?

Já, hægt er að samþætta þjónustu á fyrsta stigi. Tengiliður farsældar aðstoðar barn og foreldra við að óska eftir samþættingu þjónustu þegar þörf er á samhæfingu stuðnings frá fleiri en einum þjónustuveitanda.

Til að samþætting þjónustu geti hafist þarf að liggja fyrir beiðni foreldra og/eða barns um samþættingu þjónustu.

  • Beiðnin er lögð fram með því að fylla út eyðublaðið Beiðni um samþættingu þjónustu.
  • Tengiliður farsældar getur aðstoðað foreldra og/eða barn við að fylla út eyðublaðið.

Þegar beiðni um samþættingu þjónustu liggur fyrir getur tengiliður farsældar aflað upplýsinga um aðstæður barns frá viðeigandi þjónustuveitendum og þeim sem veita almenna þjónustu í þágu farsældar barnsins.

Upplýsingum er aðeins miðlað að því marki sem nauðsynlegt er vegna samþættingar þjónustunnar og með hagsmuni barnsins að leiðarljósi.

Tengiliður skipuleggur og fylgir eftir samþættingu þjónustu á fyrsta stigi í samstarfi og samráði við foreldra og barn.

Getur samþætting hafist á 2. eða 3. stigi þjónustu?

Já, samþætting þjónustu getur hafist á öðru eða þriðja stigi án þess að samþætting hafi áður farið fram á fyrsta stigi.

Þegar barn og fjölskylda þess eru í þjónustu hjá ráðgjafa velferðarsviðs eða fulltrúa barnaverndar og þörf er talin á samþættingu þjónustu skal kynna samþætta þjónustu fyrir foreldrum og barni og leiðbeina þeim um hvernig óska megi eftir henni.

  • Það er gert með því að fylla út eyðublaðið Beiðni um samþættingu.
  • Ráðgjafi getur aðstoðað foreldra og/eða barn við að fylla út eyðublaðið.

Þegar beiðni um samþættingu þjónustu liggur fyrir og ástæða er til að ætla að barn þurfi fjölþætta þjónustu á öðru og/eða þriðja stigi til lengri tíma tilnefnir sveitarfélagið málstjóra farsældar.

Málstjóri hefur umsjón með samþættingu þjónustunnar og getur aflað og miðlað nauðsynlegum upplýsingum um aðstæður barns í samræmi við gildandi lagaheimildir.

Nánar um samþættingu þjónustu

 

Hvernig hefst samþætting þjónustu?

Ef þú ert foreldri

Ef þú hefur áhyggjur af því að þörfum barnsins þíns sé ekki mætt getur þú leitað til tengiliðar farsældar í nærumhverfi barnsins.

Tengiliður fer yfir stöðuna með þér og barninu og leiðbeinir um næstu skref. Ekki þarf að fylla út eyðublað um miðlun upplýsinga til að óska eftir samtali.

Ef þú ert starfsmaður í skóla

Ef þú telur að barn þurfi frekari stuðning skaltu upplýsa foreldra og barn um samþætta þjónustu og hvernig hægt er að leita til tengiliðar farsældar í skólanum.

Ef þú ert annar þjónustuveitandi

Ef þú telur að barn þurfi frekari stuðning skaltu upplýsa foreldra og barn um samþætta þjónustu og hvernig hægt er að hafa samband við tengilið farsældar.

Ef foreldrar og/eða barn óska eftir að þú miðlir upplýsingum til tengiliðar er notað eyðublaðið Beiðni um miðlun upplýsinga.

Hvað gerist næst?

Ef þörf er á samþættingu þjónustu aðstoðar tengiliður foreldra og barn við að leggja fram Beiðni um samþættingu þjónustu.

Eiga öll mál þar sem barn og fjölskylda þurfa aðstoð að vera samþætt?

Nei, börn og fjölskyldur geta fengið aðstoð og stuðning án þess að þjónustan sé samþætt.

Í mörgum tilvikum nægir almenn grunnþjónusta eða einstaklingsbundinn stuðningur frá einum þjónustuveitanda. Þegar þörf er á samstarfi fleiri þjónustuveitenda getur verið gagnlegt að óska eftir samþættingu þjónustu.

Sjá nánar undir Hvernig hefst samþætting þjónustu?

Hvað gerist ef barnið mitt þarf einstaklingsmiðaðan stuðning en ég vil ekki þiggja samþætta þjónustu?

Barn getur áfram fengið þá þjónustu og stuðning sem það á rétt á þótt foreldrar óski ekki eftir samþættingu þjónustu.

Samþætting er valfrjáls og kemur ekki í stað þeirrar þjónustu sem þegar stendur börnum og fjölskyldum til boða.

Eyðublöð og aðrar hagnýtar upplýsingar

 

Um eyðublöðin

Tvær tegundir beiðna eru notaðar í tengslum við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna:

Beiðni um miðlun upplýsinga

Notuð þegar foreldrar og/eða barn óska eftir að þjónustuveitandi miðli upplýsingum um aðstæður barns til tengiliðar farsældar. Beiðnin heimilar eingöngu þá tilteknu upplýsingamiðlun.

Beiðni um samþættingu þjónustu

Notuð þegar foreldrar og/eða barn óska eftir að þjónusta við barnið verði samþætt. Beiðnin heimilar nauðsynlega öflun, vinnslu og miðlun upplýsinga milli viðeigandi aðila í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Þurfa báðir foreldrar að undirrita beiðni um miðlun upplýsinga og/eða samþættingu?

Ekki í öllum tilvikum. Það fer meðal annars eftir því hvernig forsjá barnsins er háttað og hvaða lög eiga við hverju sinni.

Oft nægir undirskrift annars foreldris, en mikilvægt er að gæta að réttindum beggja forsjáraðila og hafa ávallt hagsmuni barnsins að leiðarljósi.

Þarf að leggja fram nýja beiðni um samþættingu ef þjónusta færist á annað stig? 

Nei, ekki þarf að leggja fram nýja beiðni um samþættingu þjónustu þegar þjónustan færist á milli þjónustustiga. Fyrri beiðni gildir áfram og er gerð aðgengileg tengilið eða málstjóra farsældar, eftir því sem við á.

Gagnlegar vefsíður

Information in English - Children‘s Prosperity

Information about the integration of services for children and families in Iceland:

Fyrirspurnir og ábendingar

Almennum fyrirspurnum og ábendingum varðandi farsæld barna má beina á netfangið mottaka@hveragerdi.is.

Fyrirspurnum sem varða málefni einstakra barna skal beina til tengiliðar farsældar í nærumhverfi barnsins eða til velferðarsviðs Hveragerðisbæjar.

 

 

Síðast breytt: 27.10.2026