Fara í efni

Bæjarstjórn

467. fundur 11. júní 2015 kl. 17:00 - 17:00 Sunnumörk 2
Nefndarmenn
  • Eyþór H. Ólafsson
  • Njörður Sigurðsson
  • Ninna Sif Svavarsdóttir
  • Guðjón Óskar Kristjánsson
  • Unnur Þormóðsdóttir
  • Garðar Rúnar Árnason
  • Aldís Hafsteinsdóttir
Starfsmenn
  • Helga Kristjánsdóttir skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Helga Kristjánsdóttir skrifstofustjóri

Forseti bæjarstjórnar, Eyþór H. Ólafsson, setti fund og stjórnaði.
Leitaði hann eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
Forseti bauð Guðjón Óskar Kristjánsson velkominn á sinn fyrsta bæjarstjórnarfund.

Dagskrá:
1. 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi.
• Frumkvöðla í bæjarstjórn minnst.
• Miðbæjartorgi gefið nafn.
2. Fundargerðir:
2.1. Bæjarráðs frá 21. maí 2015.
2.2. Bæjarráðs frá 4. júní 2015.
2.3. Menningar- íþrótta- og tómstundanefnd frá 27. maí 2015.

3. Kosning forseta- og varaforseta í bæjarstjórn skv. 7. gr. samþykktar um stjórn Hveragerðisbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
4. Kosning skrifara og varaskrifara skv 7. gr samþykktar um stjórn Hveragerðisbæjar og fundarsköp.
5. Kosning í bæjarráð skv. 26. gr. samþykktar um stjórn Hveragerðisbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
6. Skipan fulltrúa í vinnuhóp SASS um svæðisskipulag og mögulegt hlutverk þess við byggðaþróun.
7. Leigusamningur milli Kvenfélags Hveragerðis og Hveragerðisbæjar vegna Fljótsmerkur 2.
8. Fyrirspurn frá fulltrúum S-lista um birtingu fundargagna bæjarstjórnar á netinu.
9. Sumarleyfi bæjarstjórnar.
10. Fundargerðir til kynningar:
10.1. Bæjarstjórnar frá 13. maí 2015.

Hér var gengið til dagskrár.


1. 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi.
*Frumkvöðla í bæjarstjórn minnst.
Eftirtaldir tóku til máls: Eyþór H. Ólafsson, Njörður Sigurðsson og Aldís Hafsteinsdóttir.
Til heiðurs þeim konum sem vörðuðu veginn og fyrstar urðu til að taka sæti í bæjarstjórn hefur bæjarstjórn tekið saman eftirfarandi upplýsingar:
Fyrsta konan sem kjörin var í hreppsnefnd Hveragerðishrepps var Þórgunnur Björnsdóttir (3.8.1921-23.2.2012), kennari við Barna- og Unglingaskólann í Hveragerði. Hún hlaut kosningu í hreppsnefndarkosningum 31.5.1970 og sat sinn fyrsta hreppsnefndarfund 14.6.1970.
Þórgunnur skipaði efsta sæti á framboðslista Alþýðubandalagsins til hreppsnefndarkosninga í Hveragerði 1970. Viðtal við Þórgunni birtist í Þjóðviljanum 26. maí sama ár og þar var hún spurð að því af hverju kona hefði valist í fyrsta sæti listans. Þórgunnur svarar:
„....það er vitlaus þessi árátta að draga fólk í dilka eftir kynjum og aldri. Það er víst annars mín kynslóð, sem á mesta sök á því , en þróunin þyrfti að vera sú, að aðskilnaður kynjanna og aldursflokkanna í störfum og heimilislífi minnkaði. Ég hef það mikið álit á karlmönnum, að ég tel að þeir eigi að hafa meiri dagleg afskipti og fyrirhöfn af börnum sínum. Krakkarnir hefðu gott af því, feðurnir þó enn betra. Atvinnuhættir þyrftu að breytast í það horf, að meira jafnvægi gæti orðið í heimilislífinu, feðurnir meira heima, en mæðurnar þyrftu ekki alla tíma að vera innan veggja heimilisins. Og húsmæðurnar þurfa að komast út í atvinnulífið.“
Þórgunnur, sem alin var upp á Grenivík var að mörgu leyti á undan sinni samtíð er varðar réttindi kvenna. Hún olli til dæmis miklum umræðum á stjórnarfundi útgerðarfélags á Grenivík þegar hún vildi kaupa hlutabréf í fyrirtækinu í eigin nafni en slíkt gerðu ekki konur í þá daga.
Árið 1950 var lagasetning sett á Alþingi um að allar mæður ættu rétt á fæðingarstyrkjagreiðslum en áður voru greiðslurnar tengdar launum maka.
Þegar eldri sonur hennar fæddist í lok árs 1951 þurfti afleysingakennara fyrir hana við Barnaskólann á Grenivík og fannst mönnum þar nyrðra sjálfsagt að hún myndi sjálf greiða laun afleysingamanns. Þórunn systir hennar leysti hana af í kennslunni en Þórgunnur vildi ekki borga afleysingamanni sjálf og leitaði réttar síns fyrir dómstólum. Hún vann málaferlin sem tóku nokkuð langan tíma. Árið 1954 náðist síðan mikilvægur áfangi hvað varðar fæðingarorlof kvenna þegar konur sem störfuðu hjá ríkinu fengu þriggja mánaða greitt fæðingarorlof inn í kjarasamninga sína. Það hafði mjög jákvæð áhrif á stöðu annarra kvenna því nokkur verkalýðsfélög fylgdu í kjölfarið.
Áður en Þórgunnur hlaut kjör í hreppsnefnd höfðu þrjár aðrar konur tekið sæti á bæjarstjórnarfundum sem varamenn.

Líney Kristinsdóttir var fyrst kvenna til að taka sæti á bæjarstjórnarfundi í Hveragerði. Hún sat sinn fyrsta hreppsnefndarfund 13.5.1964 í veikindaforföllum Teits Eyjólfssonar, oddvita, og sat hún nokkurn fjölda funda út kjörtímabilið (til 1966) sem varamaður.

Líney tók virkan þátt í ýmsum félagsmálum, m.a. var hún formaður verkakvennafélags á Hofsósi þar sem hún bjó áður.
Líney var forstöðukona Dvalarheimilisins Áss í Hveragerði í tæpa þrjá áratugi. Þar nutu atorka hennar og vinnusemi sín einstaklega vel. Hún var nánast hamhleypa til verka og reyndist ekkert ómögulegt.

Elín Guðjónsdóttir sat sinn fyrsta hreppsnefndarfund 5.4.1968 sem varamaður. Hún sat nokkuð af fundum út kjörtímabilið (til 1970).
Elín bjó í Hveragerði mestan hluta ævi sinnar. Elín beitti sér fyrir stofnun Kvenfélags Hveragerðis 1951 og var fyrsti formaður þess. Kvenfélagið beitti sér á mjög víðtækan hátt að mörgum framfaramálum, hélt urmul námskeiða og samkoma, stofnaði vísi að heilsuræktarstöð með ljósalömpum og byggði gæsluvöll og leikskóla fyrir börn.

Sigurlaug Guðmundsdóttir sat sinn fyrsta hreppsnefndarfund 5.4.1968 sem varamaður.
Sigurlaug rak ásamt manni sínum Hallgrími Hafsteini Egilssyni, garðyrkjustöðina Grímsstaði í Hveragerði.
Árið 1951 var stofnað kvenfélag í plássinu og þar varð Sigurlaug strax driffjöður og kraftmikill þátttakandi. Eitt af verkefnum félagsins var að vinna að velferð barna. Var þá ákveðið að setja á stofn leikskóla. Silla var kosin formaður byggingarnefndar og undir hennar stjórn var byggt hús og þar hefur verið rekinn leikskóli og síðar frístundaskóli síðan.

Eftirfarandi bókun borin upp og samþykkt samhljóða:
Bæjarstjórn minnist með hlýhug og virðingu framlags þeirra kvenna sem ruddu brautina í sveitarstjórnarmálum í Hveragerði. Það voru kjarkmiklir dugnaðarforkar sem fyrstar sátu í hreppsnefnd enda þurfti mikinn styrk til að hefja vegferðina inn á hinn hefðbundna vettvang karlanna.
Bæjarstjórn mun láta útbúa veggspjöld sem komið verður fyrir á bókasafni og bæjarskrifstofu til að minnast þeirra kvenna sem fyrstar sátu í bæjarstjórn.

*Miðbæjartorgi gefið nafn.
Eftirtaldir tóku til máls: Eyþór H. Ólafsson, Njörður Sigurðsson og Aldís Hafsteinsdóttir.
Eftirfarandi tillaga borin upp og samþykkt samhljóða:
Bæjarstjórn samþykkir að torgið í miðbænum fái nafnið Kvennaskólatorg til heiðurs Kvennaskólanum að Hverabökkum sem rekinn var af frumkvöðlinum Árnýju Filippusdóttur. Skólinn stóð við torgið og því þykir það vel við hæfi að minnst allra þeirra kvenna sem þar hlutu alhliða menntun með þessum hætti.

2. Fundagerðir;

2.1. Bæjarráðs frá 21. maí 2015.
Eftirtaldir tóku til máls: Eyþór H. Ólafsson, Garðar Rúnar Árnason, Aldís Hafsteinsdóttir, Njörður Sigurðsson og Unnur Þormóðsdóttir.
Liður 2.1. „Starfsmannahald í Frístundaskólanum“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 3.1. „Tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun – Leikskólinn Óskaland“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 3.2. „Minnisblað frá skipulags- og byggingarfulltrúa – Tjaldsvæði við Reykjamörk“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 3.3. „Minnisblað frá skrifstofustjóra – Símkerfi á bæjarskrifstofum“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 3.4. „Minnisblað frá umhverfisfulltrúa – Malbikunarframkvæmdir í Hveragerði 2015“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Fundargerðin að öðru leyti samþykkt samhljóða.

2.2. Bæjarráðs frá 4. júní 2015.
Eftirtaldir tóku til máls: Eyþór H. Ólafsson, Garðar Rúnar Árnason, Ninna Sif Svavarsdóttir, Aldís Hafsteinsdóttir og Njörður Sigurðsson.
Liður 3.1. „Minnisblað frá menningar- og frístundafulltrúa frá 30. maí 2015“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 5.3. „Minnisblað frá skipulags- og byggingarfulltrúa frá 20. maí 2015“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 5.4. „Tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun - íþróttahús“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.

2.3. Menningar- íþrótta- og tómstundanefndar frá 27. maí 2015.
Eftirtaldir tóku til máls: Ninna Sif Svavarsdóttir, Njörður Sigurðsson, Garðar Rúnar Árnason og Eyþór H. Ólafsson
Varðandi lið 4c felur bæjarstjórn menningar- og frístundafulltrúa að kanna verð og mögulega staðsetningu á aðstöðu til hjólabrettaiðkunar.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.

3. Kosning forseta- og varaforseta í bæjarstjórn skv. 7. gr. samþykktar um stjórn Hveragerðisbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Kosning forseta bæjarstjórnar.
Ninna Sif Svavarsdóttir fékk 7 atkvæði. Ninna Sif Svavarsdóttir er því kjörinn forseti bæjarstjórnar. Ninna Sif Svavarsdóttir tók við fundarstjórn.
Kosning varaforseta bæjarstjórnar.
Unnur Þormóðsdóttir fékk 7 atkvæði. Unnur Þormóðsdóttir er því kjörin varaforseti.

4. Kosning skrifara og varaskrifara skv. 7. gr. samþykktar um stjórn Hveragerðisbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Stungið var upp á Eyþór H. Ólafssyni sem skrifara. Samþykkt með 7 atkvæðum.
Kosning varaskrifara.
Stungið var upp á Garðari Rúnari Árnasyni sem varaskrifara. Samþykkt með 7 atkvæðum.

5. Kosning í bæjarráð skv. 26. gr. samþykktar um stjórn Hveragerðisbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Kosning þriggja fulltrúa í bæjarráð.
Tillaga kom um aðalmenn:
Eyþór H. Ólafsson formaður
Unnur Þormóðsdóttir varaformaður
Viktoría Sif Kristinsdóttir
Tillaga kom um varamenn.
Ninna Sif Svavarsdóttir
Aldís Hafsteinsdóttir
Garðar Rúnar Árnason

Tillögurnar samþykktar samhljóða.

6. Skipan fulltrúa í vinnuhóp SASS um svæðisskipulag og mögulegt hlutverk þess við byggðaþróun.
Tillaga kom um að fulltrúar verði:
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri og Eyþór H. Ólafsson, formaður skipulags- og mannvirkjanefndar.

Tillagan samþykkt samhljóða.

7. Leigusamningur milli Kvenfélags Hveragerðis og Hveragerðisbæjar vegna Fljótsmerkur 2.
Lagður fram leigusamningur milli Kvenfélags Hveragerðis og Hveragerðisbæjar vegna leigu á Fljótsmörk 2.
Eftirtaldir tóku til máls: Ninna Sif Svavarsdóttir og Aldís Hafsteinsdóttir.
Leigusamningurinn samþykktur samhljóða.

8. Fyrirspurn frá fulltrúum S-lista um birtingu fundargagna bæjarstjórnar á netinu.
Fulltrúar S-listans lögðu fram eftirfarandi fyrirspurn.
Á fundi bæjarstjórnar 8. janúar sl. var ákveðið að fresta afgreiðslu á tillögu Samfylkingarinnar og óháðra um birtingu fundargagna bæjarstjórnar á vefnum og bæjarstjóra falið að kanna hvort fundagátt sem til stendur að taka í notkun gefi möguleika á tengingum með einföldum hætti. Nú þegar fimm mánuðir eru liðnir frá því að málið var afgreitt á þennan veg í bæjarstjórn spyrja undirritaðir hvers bæjarstjóri hefur orðið vísari í málinu.
Njörður Sigurðsson
Guðjón Óskar Kristjánsson
Eftirtaldir tóku til máls: Njörður Sigurðsson og Aldís Hafsteinsdóttir.
Aldís Hafsteinsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
Það liggur fyrir að með skönnun skjala bæjarins gefst möguleiki á að birta fundargögn á netinu. Ekki hefur enn verið keypt fundagátt sem tengjast mun við OneSystems skjalastjórnunarkerfið en áætlað er að það verði gert og kerfið verði tilbúið til notkunar eftir sumarfrí bæjarstjórnar.

9. Sumarleyfi bæjarstjórnar.
Forseti lagði fram svohljóðandi tillögu:
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkir að fella niður fundi bæjarstjórnar í júlí og ágúst vegna sumarleyfis bæjarstjórnar og felur bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála í samræmi við 4. mgr. 8. greinar og 6. mgr. 31. greinar samþykkta um stjórn Hveragerðisbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Tillagan samþykkt samhljóða.

10. Fundagerðir til kynningar;

10.1. Bæjarstjórnar frá 13. maí 2015.


Fundargerðin upp lesin og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:20

Getum við bætt efni síðunnar?