Fara í efni

Sumarstarf á Bókasafninu í Hveragerði

Bókasafnið í Hveragerði auglýsir eftir sumarstarfsmanni. Starfið felst í afgreiðslu og upplýsingagjöf til lánþega, þrifum og frágangi á safnkosti, aðstoð við viðburði og fleira tilfallandi. Unnið er á vöktum virka daga og annan hvern laugardag. Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.

Krafist er ríkrar þjónustulundar, sjálfstæðra vinnubragða, góðrar tölvukunnáttu, stundvísi og jákvæðni.
Sótt er um á umsókn ,,Sumarstarf - Bókasafnið í Hveragerði" undir mannauðsmál á íbúagátt 
Umsóknarfrestur er til 1. maí 2024.

Nánari upplýsingar veitir Edda Hrund, forstöðumaður, eddahrund@hveragerdi.is


Síðast breytt: 19. mars 2024
Getum við bætt efni síðunnar?