Fara í efni

Bæjarstjórn

470. fundur 12. nóvember 2015 kl. 17:00 - 18:38 Sunnumörk 2
Nefndarmenn
  • Eyþór H. Ólafsson
  • Viktoría Sif Kristinsdóttir
  • Friðrik Sigurbjörnsson
  • Guðjón Kristjánsson
  • Unnur Þormóðsdóttir
  • Garðar Rúnar Árnason
  • Aldís Hafsteinsdóttir
Starfsmenn
  • Helga Kristjánsdóttir skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Helga Kristjánsdóttir skrifstofustjóri

Forseti bæjarstjórnar, Eyþór H. Ólafsson, setti fund og stjórnaði.
Leitaði hann eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
Dagskrá:
1. Fundargerðir:
1.1. Bæjarráðs frá 14. október 2015.
1.2. Bæjarráðs frá 5. nóvember 2015
1.3. Skipulags- og mannvirkjanefndar frá 9. nóvember 2015.
1.4. Fræðslunefndar frá 29. september 2015.
1.5. Skólaþjónustu- og velferðarnefndar Árnesþings frá 26. október 2015.
1.6. Umhverfisnefndar frá 7. október 2015.
1.7. Menningar- íþrótta- og frístundanefndar frá 20. október 2015.

2. Gjaldskrár Hveragerðisbæjar fyrir árið 2016, fyrri umræða.
3. Fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2016, fyrri umræða.
4. Þriggja ára fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar 2017-2019, fyrri umræða.
5. Brunavarnaráætlun Brunavarna Árnessýslu.
6. Fundargerðir til kynningar:
6.1. Bæjarstjórnar frá 8. október 2015.

Hér var gengið til dagskrár.


1. Fundagerðir;

1.1. Bæjarráðs frá 14. október 2015.
Eftirtaldir tóku til máls: Eyþór H. Ólafsson, Garðar Rúnar Árnason, Aldís Hafsteinsdóttir, Viktoría Sif Kristinsdóttir og Friðrik Sigurbjörnsson.
Liður 1.7. „Bréf frá Arn-Verk ehf frá 7. október 2015“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 2.1. „Minnisblað frá skipulags- og byggingarfulltrúa v/ lóðarinnar Austurmörk 6, 8 og 10“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 2.2. „Drög að samkomulagi milli Hveragerðisbæjar og Ræktunar-miðstöðvarinnar sf“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Fundargerðin að öðru leyti samþykkt samhljóða.

1.2. Bæjarráðs frá 5. nóvember 2015.
Eftirtaldir tóku til máls: Eyþór H. Ólafsson, Aldís Hafsteinsdóttir og Garðar Rúnar Árnason.
Liður 1.10. „Bréf frá Sigurbirni Viktorssyni og Viktori Sveinssyni frá 29. október 2015“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 2.1. „Minnisblað frá skipulags- og byggingarfulltrúa – Tívolíreitur „Í14“- Gildandi skipulagsáætlanir“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 2.2. „Opnun tilboða í verkið „Lyfta í Sundlaugarhúsið í Laugaskarði““ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 3.1. „Framlenging á samstarfssamningi við Markaðsstofu Suðurlands“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 3.2. „Umsókn um styrk frá Bókabæjum austanfjalls“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 3.3. „Deloitte – Ráðningabréf um endurskoðun“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Liður 3.4. „Tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun – Velferðasvið Hveragerðisbæjar“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Fundargerðin að öðru leyti samþykkt samhljóða.

1.3. Skipulags- og mannvirkjanefndar frá 9. nóvember 2015.
Eftirtaldir tóku til máls: Eyþór H. Ólafsson, Aldís Hafsteinsdóttir, Garðar Rúnar Árnason, Viktoría Sif Kristinsdóttir og Unnur Þormóðsdóttir.
Liður 1. „Aðalskipulag Hveragerðis, heildarendurskoðun – kynning á skipulagslýsingu“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að leitað verði umsagnar um skipulagslýsinguna hjá Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum og hún kynnt fyrir almenningi eins og kveðið er á um í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Bæjarstjórn samþykkir að haldinn verði íbúafundur þann 24. nóvember 2015 til að kynna skipulagslýsinguna og önnur skipulagsmál sem eru í vinnslu.
Liður 2. „Aðalskipulag, tillaga að breytingu sem nær til lóða NLFÍ og Lækjarbrúnar“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að tillaga verði kynnt almenningi og umsagnaraðilum og auglýst í samræmi við 31. gr. skipulaglaga nr 123/2010.
Liður 3. „Kambaland, tillaga að breytingu á deiliskipulagi“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að tillagan verði kynnt fyrir landeigendum á deiliskipulagsreitnum og auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr 123/2010.
Liður 4. „Brattahlíð – Klettahlíð, nýtt deiliskipulag“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að drög að deiliskipulagi verði kynnt fyrir lóðarhöfum lóða inna deiliskipulagsins og Landform ehf. falið að gera tillögu að deiliskipulagi reitsins í samræmi við niðurstöðu kynningar.
Liður 5. „Breyting á deiliskipulagi við Heiðmörk og Þelamörk.
Bæjarstjórn samþykkir að breytingin verði grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Liður 7. „Tívolíreitur, tillaga að breytingu á aðalskipulagi“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að tillagan verði kynnt almenningi og auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Liður 8. „Austurmörk 4, breyting á útliti, utanhúsklæðning og tvær nýjar flóttaleiðir“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir byggingaleyfi fyrir framkvæmdinni. Gerð er krafa um fellistiga við svalir.
Liður 9. „Umferðaröryggismál“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að Umferðaröryggisskýrsla fyrir Hveragerðisbæ frá 2007 verði uppfærð og endurskoðuð við heildarendurskoðun Hveragerðisbæjar og þar með taldar mögulegar hraðalækkandi aðgerðir í Laufskógum.
Fundargerðin að öðru leyti samþykkt samhljóða.

1.4. Fræðslunefndar frá 29. september 2015.
Eftirtaldir tóku til máls: Eyþór H. Ólafsson, Aldís Hafsteinsdóttir og Unnur Þormóðsdóttir.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.

1.5. Skólaþjónustu- og velferðarnefndar Árnesþings frá 26. október 2015.
Eftirtaldir tóku til máls: Unnur Þormóðsdóttir, Eyþór H. Ólafsson og Garðar Rúnar Árnason,
Liður 2 „Tillaga að gjaldskrá og grunnupphæð fjárhagsaðstoðar fyrir árið 2016“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrána.
Fundargerðin að öðru leyti samþykkt samhljóða.

1.6. Umhverfisnefndar frá 7. október 2015.
Eftirtaldir tóku til máls: Eyþór H. Ólafsson.
Bæjarstjórn fagnar frjóum og góðum tillögum og vísar þeim til gerðar fjárhagsáætlunar. Fundargerðin að öðru leyti samþykkt samhljóða.

1.7. Menningar-, íþrótta- og frístundanefndar frá 20. október 2015.
Eftirtaldir tóku til máls: Eyþór H. Ólafsson, Aldís Hafsteinsdóttir og Viktoría Sif Kristinsdóttir.
Liður 5. „Landsmótsnefnd UMFÍ 50+“ afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að í stað Aldísar Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra, verði Gísli Páll Pálsson fulltrúi í nefndinni og verði hann jafnframt formaður.
Fundargerðin að öðru leyti samþykkt samhljóða.

2. Gjaldskrár Hveragerðisbæjar fyrir árið 2016, fyrri umræða.
Lögð fram gjaldskrá til fyrri umræðu fyrir útsvar, fasteignagjöld, aukavatnsgjöld, dýraleyfisgjöld, leikskólagjöld, frístundaskóla, skólamötuneyti, sundlaug og Bókasafn Hveragerðisbæjar fyrir árið 2016.
Enginn tók til máls.
Samþykkt að vísa gjaldskránum til síðari umræðu.

3. Fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2016, fyrri umræða.
Lögð fram til fyrri umræðu drög að fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2016.
Bæjarstjóri kynnti áætlunina og lagði fram eftirfarandi greinargerð.
Fjárhagsáætlun ársins 2016 var unnin af öllum bæjarfulltrúum sameiginlega og var samstarfið afar ánægjulegt. Fyrir það ber að þakka. Ennfremur er skrifstofustjóra og öðrum starfsmönnum þakkað framúrskarandi gott samstarf við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.
Almennt:
Fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2016 er unnin með það að markmiði að íbúum Hveragerðisbæjar verði tryggð besta mögulega þjónusta og að reynt verði eftir fremsta megni að halda álögum í sem bestu samræmi við það sem gerist í samanburðarsveitarfélögum.
Markmið:
Markmið bæjarstjórnar við gerð áætlunarinnar er að skilyrði nýrra sveitarstjórnarlaga verði uppfyllt en í því felst m.a. að:
• Samanlögð rekstrarniðurstaða samstæðu A/B hluta skal vera jákvæð á hverju þriggja ára tímabili.
• Heildarskuldir og skuldbindingar séu ekki hærri en sem nemur 150% af tekjum.
Forsendur:
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 er tekið mið af útkomuspá ársins 2015. Mikil óvissa ríkir enn vegna yfirvofandi kjarasamninga en mögulega mun eitthvað skýrast í þeim málum á milli umræðna. Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að hækka laun allra nema grunnskólakennara um 8% á milli áranna 2015 og 2016. Grunnskólakennarar fá 6% launahækkun í ársbyrjun en samningar þeirra eru lausir um mitt ár 2016.
Íbúum hefur fjölgað umtalvert á árinu og eru samkvæmt síðustu tölum 2.426 en voru 2.383 í lok árs 2015 er það fjölgun um 1,8%. Úthlutun lóða hefur gengið vel á árinu og hefur nokkur fjöldi nýrra íbúða verið tekinn í notkun og fleiri eru í farvatninu. Vonast bæjarstjórn til að áfram fjölgi í bæjarfélaginu á næstu misserum.
• Í fyrri umræðu er gert ráð fyrir óbreyttri útsvarsprósentu eða 14,52%
• Álagningarprósentur fasteignagjalda eru óbreyttar á alla flokka húsnæðis. Þannig að greidd fasteignagjöld munu eingöngu hækka um sem nemur hækkun fasteignamats. Gjöld vegna sorphirðu og sorpurðunar hækka um 2% og verður gjald vegna sorphirðu 17.200,- en vegna sorpurðunar 13.400,-.
• Bæjarstjórn hefur undanfarin ár miðað hækkun gjaldskráa við verðlagsþróun síðastliðins árs en ekki við verðbólguspá komandi árs. Með þessu móti telur bæjarstjórn sig vinna með rauntölur sem hlýtur að vera eðlilegra en að hækka gjaldskrár á undan verðbólgunni en slíkt eykur verðbólguþrýsting. Gjaldskrár hækka því miðað við verðlagsþróun 2015 eða um 2% að jafnaði. Í öllum tilfellum er hagur bæjarbúa hafður að leiðarljósi og hækkunum stillt í hóf eins og mögulegt er.
• Gert er ráð fyrir að framlag Jöfnunarsjóðs hækki frá áætlaðri niðurstöðu ársins 2015 og byggir áætlun ársins 2016 á rauntölum ársins 2015 og spám Jöfnunarsjóðs.
• Fjárhagsáætlanir einstakra deilda eru unnar í góðri samvinnu við forstöðumenn stofnana og ber að þakka þann góða vilja og jákvæðni sem starfsmenn hafa sýnt við gerð fjárhagsáætlunarinnar. Ætlast er til að forstöðumenn sýni áfram ýtrustu hagræðingu bæði í innkaupum og í starfsmannahaldi.
Viðhald og fjárfestingar:
• Stærsta einstaka fjárfesting ársins 2016 er nýr leikskóli en bygging hans mun hefjast á árinu 2016. Fjármunir eru settir til endurbóta í Sundlauginni í Laugaskarði. Gert er ráð fyrir að lagt verði slitlag á bílastæði við Hamarshöll að hluta og ennfremur er gert ráð fyrir yfirlagi á eldri götur í þéttbýlinu ásamt endurbótum á gönguleiðum. Bæjarfélagið hefur nú eignast Mjólkurbúið að öllu leyti og þar er fyrirhugað að fara í endurbætur á ytra byrði hússins. Framkvæmdir verða þó nokkrar við fráveitu og vatnsveitu en aðrar fjárfestingar eru smærri.
Rekstrartölur:
Við framlagningu fjárhagsáætlunar til fyrri umræðu er gert ráð fyrir að áætlaðar heildartekjur Hveragerðisbæjar (aðalsjóðs, A- og B- hluta) nemi alls kr. 2.270 m.kr.. fyrir árið 2016. Þar af eru skatttekjur ráðgerðar kr. 1.203 milljónir. Framlög Jöfnunarsjóðs eru áætluð 500 m.kr.. og aðrar tekjur bæjarsamstæðu um 567 m.kr.. Rekstrargjöld og reiknaðar afskriftir samstæðu nema um 2.064 m.kr.. Niðurstaða samstæðu án fjármagnsliða er því jákvæð um 206 milljónir sem er 9% af tekjum. EBITDA Hveragerðisbæjar er 308 m.kr.. Fjármagnsliðir eru áætlaðir 180 m.kr. og er rekstrarniðurstaða samstæðu því jákvæð um 26 m.kr.. Í fyrri umræðu er gert ráð fyrir 4,5% verðbólgu á árinu 2016. Samanlögð rekstrarniðurstaða áranna 2014, 2015 og 2016 verður því jákvæð um 151 m.kr. sem er í fullu samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga.
Skuldir og skuldbindingar:
Afborganir langtímalána verða rúmlega 170 m.kr. og tekin ný lán munu nema 200 m.kr. á árinu 2016. Í lok árs 2016 verða langtímaskuldir samstæðu 2.276 m.kr.. Þar af er lífeyrisskuldbinding sveitarsjóðs 463 m.kr. og skuldbindingar vegna leigugreiðslna í Sunnumörk 265 m.kr.
Skuldir og skuldbindingar Hveragerðisbæjar í lok ársins 2016 munu verða 113% af árstekjum. Skv. fjármálareglum sveitarfélaga er heimilt að draga frá skuldum skuldbindingu vegna lífeyris sem fellur til eftir 15 ár og síðar. Sé það gert myndi skuldahlutfallið batna enn frekar og verða 105%. Er skuldastaða sveitarfélagsins því vel undir skuldaþakinu sem lögfest hefur verið í sveitarstjórnarlögum og batnar hlutfallið með hverju árinu sem líður eins og best sést á 3. ára áætlun sem hér verður lögð fram á eftir.
Lokaorð:
Nánari útfærsla einstakra liða mun koma fram i ítarlegri greinargerð sem lögð verður fram við síðari umræðu um fjárhagsáætlun þann 10. desember nk.
Eftirtaldir tóku til máls: Aldís Hafsteinsdóttir, Eyþór H. Ólafsson og Viktoría Sif Kristinsdóttir.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fjárhagsáætluninni til síðari umræðu.

4. Þriggja ára fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar 2017-2019, fyrri umræða.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir forsendum þriggja ára fjárhagsáætlunar fyrir árin 2017-2019 og lagði fram eftirfarandi greinargerð:
Unnið var í samræmi við eftirfarandi markmið við gerð þriggja ára áætlunar Hveragerðisbæjar fyrir árin 2017-2019:
• Góð þjónusta við íbúa
• Fjárfestingar á sviði skólamannvirkja, gatnagerðar og íþróttamannvirkja.
• Skuldir verða greiddar niður og skuldahlutfallið fari niður fyrir 100%.
• Samanlögð rekstrarniðurstaða samstæðu A/B hluta verði jákvæð á tímabilinu.

Almennt:
Í áætluninni er gert ráð fyrir hóflegri hækkun skatttekna næstu árin:
• Gert er ráð fyrir 3% verðbólgu á tímabilinu.
• Íbúafjölgun verði 1,6% á ári.
• Tekjur af útsvari hækki um 6,6% öll árin (5% launavísitala, 1,6% íbúafjöldi).
• Framlög úr Jöfnunarsjóði hækki um 6,6% öll árin (5% launavísitala, 1,6% íbúafjöldi).
• Aðrar tekjur hækki um 3% á ári.
• Laun hækki um 5% á ári.
• Annar kostnaður hækki um 3% á ári.
Lántökur á tímabilinu taka mið af því að ráðist verður í byggingu leikskóla. Gert er ráð fyrir 145 m.kr. langtímaláni árið 2017 og 20 m.kr. árið 2018 en að öðru leyti verður áhersla lögð á að fjárfesta fyrir handbært fé frá rekstri.
Fjárfestingar:
Helstu fjárfestingar á þessu tímabili munu verða eftirfarandi:
2017 2018 2019
Sameiginleg verkefni 3.500 3.500 3.500
Götur og göngustígar 40.000 40.000 40.000
Gatnagerðartekjur -20.000 -20.000 -20.000
Sundlaug 50.000 100.000 100.000
Leikskóli 150.000 20.000
Endurgr. Ölfus -13.500 -1.800
Endurbætur Dalurinn 15.000
Bílar og tæki 5.000 5.000
Alls fjárfesting 230.000 141.700 128.500

Rétt er að ítreka að fjárfestingaáætlun er endurskoðuð við fjárhagsáætlunargerð hvers árs í ljósi þess efnahagslega umhverfis sem ríkir á hverjum tíma.
Skuldir og skuldbindingar:
Heildarskuldir Hveragerðisbæjar munu hækka árið 2017 vegna byggingar leikskóla og munu síðan fara lækkandi. Markmið bæjarstjórnar um að skuldir samstæðu verði undir skuldaþakinu hefur þegar náðst og mun það ekki breytast þrátt fyrir nýjar fjárfestingar. Skuldir samstæðu munu þróast með eftirfarandi hætti að teknu tilliti til þess að skv. fjármálareglum sveitarfélaga er heimilt að draga frá skuldum skuldbindingu vegna lífeyris sem fellur til eftir 15 ár og síðar.
• 2016 105 % af tekjum
• 2017 101 % af tekjum
• 2018 93 % af tekjum
• 2019 85 % af tekjum
Á árunum 2017-2019 munu afborganir lána nema 498 m.kr. en á sama tímabili verða tekin ný langtímalán að upphæð 175 m.kr. eins og áður er getið.
Lokaorð:
Bæjarstjórn vill hlúa að því sem skiptir máli í okkar nærumhverfi og sjá möguleikana sem fyrir hendi eru. Unnið er að því markmiði að veita íbúum góða þjónustu en jafnframt að sýnd verði ráðdeild í verki. Stigin hafa verið stór skref við uppbyggingu grunnþjónustu á undanförnum árum. Framkvæmdir næstu ára lúta allar að því að bæta lífsgæði, gera Hveragerði að enn betri búsetukosti og að auka hér möguleika til atvinnuuppbyggingar
Með stöðugt lækkandi skuldum og léttari greiðslubyrði mun skapast svigrúm til að íbúar fái notið bætts rekstrar og meiri þjónustu þar sem þess nokkur kostur
Eftirtaldir tóku til máls: Aldís Hafsteinsdóttir.
Samþykkt að vísa þriggja ára fjárhagsáætlun til síðari umræðu.

5. Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu.
Lögð fram brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu .
Eftirtaldir tóku til máls: Eyþór H. Ólafsson.
Bæjarstjórn samþykkir áætlunina með þeim fyrirvara að ákvarðanir um fjárfestingu og búnaðarkaup eru háðar fjárhagsáætlun hvers árs.

6. Fundagerðir til kynningar:
6.1. Bæjarstjórnar frá 8. október 2015.

Fundargerðin upp lesin og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:38

Getum við bætt efni síðunnar?