Fara í efni

Fjölskyldugarðar Hveragerðisbæjar

Við Hveramörk 7 23. maí - 30. jún

Sumarið 2022 verður íbúum bæjarins boðið uppá að leigja matjurtareit af bænum.

Fjölskyldugarðarnir verða 23 talsins. Stærð garðanna er 5x4m og er kostnaður við hvern reit 3.900 kr. Vatn er til vökvunar á staðnum, en leigjendur skaffa sjálfir matjurtir og verkfæri. Svæðið er opið allan sólarhringinn. Skráning og greiðsla í fjölskyldugarðana fer fram í gegnum sportabler .

Athugið að aðilar sem leigðu fjölskyldugarð í fyrra hafa forgang í sama reit á þessu ári.

Enginn starfsmaður er á staðnum, en hægt er að hafa samband við Kristínu Snorradóttur, garðyrkjufulltrúa, í síma 483-4000, eða senda tölvupóst á netfang kristins@hveragerdi.is.

Staðsetning:

Getum við bætt efni síðunnar?