Fara í efni

Móttaka framboðslistana

10. apríl | 11:00

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga, sem fram fara 16. maí 2026, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026. Kosið verður til bæjarstjórnar í Hveragerðisbæ.

Framboðslistar skulu hafa borist yfirkjörstjórn Hveragerðisbæjar áður en framboðsfrestur rennur út sbr. ofangreindan tíma. Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum í fundarsal á 2. hæð á bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar, Breiðumörk 20, Hveragerði, föstudaginn 10. apríl 2026 frá kl. 11:00 fyrir hádegi til kl. 12:00 á hádegi.

Á framboðslista skulu vera að lágmarki 7 nöfn frambjóðenda og eigi fleiri en 14. Framboðslista skal fylgja yfirlýsing þeirra, sem á listanum eru, um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift. Gæta skal þess að tilgreina með skýrum hætti fullt nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu eða starfsheiti og lögheimili, þannig að enginn vafi leiki á því hver sé í kjöri. Eyðublað fyrir framboðslista er að finna á vef landskjörstjórnar.

Hyggist stjórnmálasamtök sem ekki hafa skráðan listabókstaf samkvæmt auglýsingu um listabókstafi stjórnmálasamtaka nr. 54/2025 í B-deild Stjórnartíðinda, bjóða fram lista skulu þau um leið og framboðslista er skilað til yfirkjörstjórnar leggja þar fram beiðni um úthlutun listabókstafs og staðfestingu á heiti framboðs.

Með hverjum framboðslista skal fylgja skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um það hverjir eru umboðsmenn listans. Upplýsingar um nafn, fæðingardag, netfang og símanúmer umboðsmanns skal fylgja tilkynningunni ásamt skriflegu samþykki hans. Samþykkið getur verið undirritað eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift. Sýnishorn af tilkynningu um framboð og umboðsmenn er að finna á vef Landskjörstjórnar.

Framboðslistum skal og fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í sveitarfélaginu, 40 meðmælenda hið fæsta og eigi fleiri en 80. Hver kjósandi má einvörðungu mæla með einum lista við hverjar kosningar. Frambjóðendur geta ekki verið meðmælendur eigin framboðs. Kjörstjórnarmenn í landskjörstjórn, yfirkjörstjórnum og umdæmiskjörstjórnum geta ekki verið meðmælendur framboðs. Nánari upplýsingar um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista er að finna í reglugerð nr. 254/2024.

Nánari upplýsingar og eyðublöð vegna skila á framboðum er að finna á vef Landskjörstjórnar á island.is

https://island.is/v/sveitarstjornarkosningar-2026/skil-a-frambodum

Hveragerði, 23. mars 2026

Yfirkjörstjórnin í Hveragerðisbæ
Reynir Þór Garðarsson
Gísli Páll Pálsson
Auður Elísabet Guðjónsdóttir

Getum við bætt efni síðunnar?