Umsókn um afslátt af fasteignaskatti og fráveitugjaldi
Sækja skal um afslátt af fasteignaskatti og fráveitugjaldi í gegnum íbúagátt hér.
Sækja skal um afrit af skattaskýrslu inná vef Skattsins hér.
1. gr.
Heimilt er að veita tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum (umsækjendur) afslátt af álögðum fasteignaskatti og fráveitugjaldi ársins 2026 vegna íbúðarhúsnæðis samkvæmt því sem fram kemur í reglum þessum, sbr. heimild í 4. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Afsláttur af fasteignaskatti og fráveitugjaldi sem veittur er elli- örorkulífeyrisþegum samkvæmt reglum þessum er reiknaður við álagningu fasteignagjalda og byggist á upplýsingum frá ríkisskattstjóra um tekjur. Afslátturinn er birtur á álagningarseðli. Komi afsláttur ekki fram á álagningarseðli skal sótt um afsláttinn í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar sem er aðgengileg á vefsíðu sveitarfélagsins www.hveragerdi.is. Með umsókn skal fylgja skattaskýrsla ársins 2026 (vegna tekna 2025) og ef við á örorkuskírteini. Hveragerðisbær getur óskað eftir gögnum/upplýsingum frá umsækjendum ef upplýsingar skortir til að meta rétt umsækjenda til afsláttar skv. reglum þessum.
2. gr.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar geta fengið afslátt af álögðum fasteignaskatti og fráveitugjaldi ársins 2026 vegna eigin íbúðarhúsnæðis ef eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:
- Umsækjandi skal vera búsettur í því íbúðarhúsnæði sem tilgreint er í umsókn og vera
skráður eigandi húsnæðisins.
- Ellilífeyrisþegar: umsækjandi skal verða 67 ára á árinu 2026 eða vera eldri.
- Örorkulífeyrisþegar: umsækjandi skal hafa verið úrskurðaður með 75% örorku hjá Tryggingastofnun ríkisins.
Afsláttur er einungis veittur af því íbúðarhúsnæði sem umsækjandi hefur fasta búsetu í. Afsláttur er ekki veittur ef umsækjandi hefur leigutekjur af því íbúðarhúsnæði sem tilgreint er í umsókn og ef í íbúðarhúsnæðinu búa, eða eru skráðir með búsetu, aðrir einstaklingar en maki umsækjanda eða börn yngri en 18 ára.
3. gr.
Ef fleiri aðilar en umsækjandi eru skráðir fyrir því íbúðarhúsnæði sem tilgreint er í umsókn umsækjanda tekur umsókn einungis til sama hlutfalls af álögðum gjöldum og skráður eignarhluti umsækjanda í húsnæði er. Afsláttur samkvæmt reglum þessum skal veittur til umsækjanda sem uppfyllir skilyrði 2. gr. þótt maki umsækjanda uppfylli ekki skilyrði 2. gr. en þá eru tekjur beggja aðila teknar til mats skv. 4. gr. og afsláttur veittur vegna eignarhluta beggja aðila í fasteign.
4. gr.
Afsláttur af fasteignaskatti og fráveitugjaldi sem veittur er skv. reglum þessum er tengdur við tekjur umsækjanda og maka sem er samskattaður með umsækjanda. Afsláttur er hlutfallslegur og miðast við tekjur ársins 2025 samkvæmt skattframtali 2026. Til tekna teljast bæði launatekjur og fjármagnstekjur umsækjanda og maka sem er samskattaður með umsækjanda. Tekjuviðmið og afsláttarhlutfall:
Einstaklingar: niðurfelling fasteignaskatts og fráveitugjalds
Tekjur ársins 2025 (kr.)
5.506.000 eða lægri 100%
5.506.001 – 6.428.000 75%
6.428.001 – 7.341.000 50%
7.341.001 – 8.262.000 25%
Hjón og samskattað sambýlisfólk:
Tekjur ársins 2025 (kr.) niðurfelling fasteignaskatts og fráveitugjalds
8.284.000 eða lægri 100 %
8.284.001 – 9.530.000 75%
9.530.001 – 10.791.000 50%
10.791.001 – 12.699.000 25%
5. gr.
Heimilt er að víkja frá þeim skilyrðum sem tilgreind eru reglum þessum varðandi búsetu
umsækjanda í íbúðarhúsnæði og tekjuviðmið ef orðið hefur veruleg breyting á högum
umsækjanda. Til verulegra breytinga á högum umsækjanda teljast eftirfarandi aðstæður:
- Maki umsækjanda hefur fallið frá á árinu 2026 og tekjur lækkað verulega.
- Umsækjandi hefur skyndilega fengið úrskurð um 75% örorku sem hefur haft veruleg
áhrif á tekjur umsækjanda til lækkunar.
6. gr.
Heimilt er að víkja frá skilyrðum sem tilgreind eru í reglum þessum varðandi búsetu umsækjanda í íbúðarhúsnæði ef um er að ræða umsækjanda sem hefur flutt úr eigin íbúðarhúsnæði og á hjúkrunarheimili ef umsækjandi uppfyllir önnur skilyrði til þess að geta fengið afslátt af fasteignaskatti og fráveitugjöldum skv. reglum þessum. Heimildin er bundin við næstu 3 ár eftir flutninga umsækjanda enda sé íbúðarhúsnæðið ekki leigt út eða nýtt af þriðja aðila með öðrum hætti.
Reglur þessar voru samþykktar á fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar þann 11. desember 2025.