Fara í efni

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá Hveragerðisbæ vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026

Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofu Hveragerðisbæjar við Breiðumörk 20 í Hveragerði frá og með 17. ágúst 2026.

Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 – 15:00 og föstudaga frá 10:00 til 12:00.

Til að geta kosið þarf kjósandi að sýna fram á að hann sé sá sem hann segist vera.

  • Best er að koma með skilríki með mynd á kjörstað, t.d. ökuskírteini eða vegabréf, til þess að kjósandi geti gert grein fyrir sér.
  • Stafræn ökuskírteini eru gild skilríki við kosningar. Þau eru núna aðgengileg í Ísland.is appinu.

Upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu á island.is


Síðast breytt: 17. ágúst 2026
Getum við bætt efni síðunnar?