Upphaf flutninga á vindmyllum í Vaðölduver
Tilkynning til ferðaþjónustuaðila vegna flutninga í Vaðölduver
Í byrjun maí áætlar Landsvirkjun að hefja umfangsmikla flutninga á vindmyllum frá Þorlákshöfn til Vaðölduvers í Rangárþingi ytra sem standa munu yfir í 7-9 vikur. Flutningarnir verða að næturlagi en ferðaþjónustuaðilar á svæðinu munu óhjákvæmilega verða varir við þá. Við viljum draga eins og kostur er úr raski á daglegu lífi þeirra sem búa eða starfa við flutningsleiðina með góðri upplýsingagjöf.
Við hvetjum sérstaklega starfsfólk í framlínu, sem er í mestum samskiptum við erlenda ferðamenn á svæðinu, til að fylgjast vel með upplýsingagjöf og upplýsa gesti um stöðu mála hverju sinni til að draga úr líkum á óþarfa raski.
Við bendum á kynningarmyndband um flutningana með helstu upplýsingum: https://www.youtube.com/watch?v=TTVANKj7xRE
Hægt er að niðurhala myndbandinu hér: https://landsvirkjun.imagerelay.com/share/d3e941b58d724b87a079e0bdb0f33041
Á upplýsingasíðunni www.landsvirkjun.is/flutningar er að finna helstu upplýsingar um flutningana. Á síðunni www.landsvirkjun.is/tilkynningar er hægt að skrá sig á póstlista til að fá mikilvægustu tilkynningarnar um flutninga og framkvæmdir sendar í tölvupósti.
Við hvetjum ferðaþjónustuaðila sérstaklega til að benda starfsfólki sínu og gestum á vefi Vegagerðarinnar, www.umferdin.is og www.road.is, sem og www.safetravel.is, þar sem fylgjast má með rauntímaupplýsingum um færð, lokanir og aðrar aðstæður á vegum.
Fyrirspurnir má senda hér: https://www.landsvirkjun.is/form/fyrirspurn-framkvaemdir
Vaktsími vegna flutninga: 690-8088
Í stuttu máli:
- 14 vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn í Ölfusi að Vaðölduveri í Rangárþingi ytra í maí og júní/byrjun júlí 2026.
- Áætlað er að flutningar hefjist aðfaranótt 7. maí.
- Áætlað er að flutt verði að nóttu til.
- Almennt verður hægt að mæta flutningslestinni en ekki verður hægt að taka fram úr henni. Lögreglan stýrir flutningunum og umferð í kringum þá.
- Áætlað er að flutningslestin verði um 60 mínútur að ferðast á Þjóðvegi 1, frá Selfossi að Landvegamótum.