Fara í efni

Upphaf flutninga á vindmyllum í Vaðölduver

Tilkynning til ferðaþjónustuaðila vegna flutninga í Vaðölduver

Í byrjun maí áætlar Landsvirkjun að hefja umfangsmikla flutninga á vindmyllum frá Þorlákshöfn til Vaðölduvers í Rangárþingi ytra sem standa munu yfir í 7-9 vikur. Flutningarnir verða að næturlagi en ferðaþjónustuaðilar á svæðinu munu óhjákvæmilega verða varir við þá. Við viljum draga eins og kostur er úr raski á daglegu lífi þeirra sem búa eða starfa við flutningsleiðina með góðri upplýsingagjöf.

Við hvetjum sérstaklega starfsfólk í framlínu, sem er í mestum samskiptum við erlenda ferðamenn á svæðinu, til að fylgjast vel með upplýsingagjöf og upplýsa gesti um stöðu mála hverju sinni til að draga úr líkum á óþarfa raski.

Við bendum á kynningarmyndband um flutningana með helstu upplýsingum: https://www.youtube.com/watch?v=TTVANKj7xRE

Hægt er að niðurhala myndbandinu hér: https://landsvirkjun.imagerelay.com/share/d3e941b58d724b87a079e0bdb0f33041

Á upplýsingasíðunni www.landsvirkjun.is/flutningar er að finna helstu upplýsingar um flutningana. Á síðunni www.landsvirkjun.is/tilkynningar er hægt að skrá sig á póstlista til að fá mikilvægustu tilkynningarnar um flutninga og framkvæmdir sendar í tölvupósti.

Við hvetjum ferðaþjónustuaðila sérstaklega til að benda starfsfólki sínu og gestum á vefi Vegagerðarinnar, www.umferdin.is og www.road.is, sem og www.safetravel.is, þar sem fylgjast má með rauntímaupplýsingum um færð, lokanir og aðrar aðstæður á vegum.

Fyrirspurnir má senda hér: https://www.landsvirkjun.is/form/fyrirspurn-framkvaemdir

Vaktsími vegna flutninga: 690-8088

Í stuttu máli:

  • 14 vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn í Ölfusi að Vaðölduveri í Rangárþingi ytra í maí og júní/byrjun júlí 2026.
  • Áætlað er að flutningar hefjist aðfaranótt 7. maí.
  • Áætlað er að flutt verði að nóttu til.
  • Almennt verður hægt að mæta flutningslestinni en ekki verður hægt að taka fram úr henni. Lögreglan stýrir flutningunum og umferð í kringum þá.
  • Áætlað er að flutningslestin verði um 60 mínútur að ferðast á Þjóðvegi 1, frá Selfossi að Landvegamótum.

Síðast breytt: 5. maí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?