Fara í efni

Þrjú ungmenni úr Hveragerði í landsliðshópnum KKÍ

Þjálfarar U16 og U18 landsliða drengja og stúlkna í körfuknattleik hafa valið sína loka 16 manna landsliðshópa sem æfa í sumar.

Það er ánægjulegt að við hvergerðingar eigum þrjá fulltrúa en Haukur Davíðsson var valinn í U16 ára landsliðið og þær Gígja Marín Þorsteinsdóttir og Helga Sóley Heiðarsdóttir voru valdar í U18 ára landsliðið. Við óskum þeim innilega til hamingju og góðs gengis í komandi verkefnum.

 Í lok mars verða svo loka 12 manna liðin valin fyrir verkefni sumarsins 2020 en þeir leikmenn sem eru hafa verið valdir nú æfa allir í sumar og eru hluti af liðunum. U16 lið stúlkna og U18 liðin bæði tvö eru með einn leikmann hvert sem er að ná sér eftir erfið meiðsli og verður staðan tekin í samráði við þá þegar nær dregur vori með framhaldið og hvernig þeir hafa náð sér af meiðslum sínum.


Síðast breytt: 28. nóvember 2020
Getum við bætt efni síðunnar?