Skilti við bæjarmörk
16.04
Frétt
Unnið er að uppsetningu skiltis við bæjarmörk Hveragerðisbæjar í Kömbunum og í kjölfarið verður sams konar skilti sett upp austan megin við bæinn. Stærð skiltanna við þjóðveg 1, austan og vestan við bæinn, verður 3 metrar á breidd og 4 metrar á hæð.
Skiltið er hannað af þremur Hvergerðingum sem skipuðu skiltanefnd; Bryndísi Eir Þorsteinsdóttur, Valgerði Jóndísi Guðjónsdóttur og Hrund Guðmundsdóttur. Starfsmaður nefndarinnar er Sigríður Hjálmarsdóttir menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi.
Um 50 sentímetrum framan við skiltið verður stöng fyrir blóm í 80-100 sentímetra hæð.

Skiltið er úr greni frá Snæfoksstöðum í Grímsnesi og Hvergerðingurinn Lárus Sigurðsson sker út byggðarmerki og bæjarnafn Hveragerðis á skiltið.
Verkfræðistofan Efla á Selfossi teiknaði og hannaði undirstöður fyrir skiltin.
Gert er rá fyrir að skiltið við þjóðveg 1 í Kömbunum verði komi upp fyrir 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar þann 29. apríl nk.
Síðast breytt: 16. apríl 2026
Getum við bætt efni síðunnar?