Fara í efni

Skilti við bæjarmörk

Unnið er að uppsetningu skiltis við bæjarmörk Hveragerðisbæjar í Kömbunum og í kjölfarið verður sams konar skilti sett upp austan megin við bæinn. Stærð skiltanna við þjóðveg 1, austan og vestan við bæinn, verður 3 metrar á breidd og 4 metrar á hæð.

Skiltið er hannað af þremur Hvergerðingum sem skipuðu skiltanefnd; Bryndísi Eir Þorsteinsdóttur, Valgerði Jóndísi Guðjónsdóttur og Hrund Guðmundsdóttur. Starfsmaður nefndarinnar er Sigríður Hjálmarsdóttir menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi. 

Um 50 sentímetrum framan við skiltið verður stöng fyrir blóm í 80-100 sentímetra hæð.

 
Skiltið er úr greni frá Snæfoksstöðum í Grímsnesi og  Hvergerðingurinn Lárus Sigurðsson sker út byggðarmerki og bæjarnafn Hveragerðis á skiltið.
 
Verkfræðistofan Efla á Selfossi teiknaði og hannaði undirstöður fyrir skiltin.
 
Gert er rá fyrir að skiltið við þjóðveg 1 í Kömbunum verði komi upp fyrir 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar þann 29. apríl nk.

Síðast breytt: 16. apríl 2026
Getum við bætt efni síðunnar?