Reglur og leiðbeiningar um girðingar, skjólveggi og smáhýsi.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða þann 12. maí 2026 reglur Hveragerðisbæjar um girðingar, skjólveggi og smáhýsi með tilheyrandi leiðbeiningum.
Aðdragandi málsins er að á fundi bæjarstjórnar þann 11. apríl 2024 beindi bæjarstjórn því til skipulags- og umhverfisnefndar að taka reglur um smáhýsi, girðingar og skjólveggi sem síðast voru samþykktar þann 14. júlí 2020 til endurskoðunar. Markmiðið var að rýmka reglurnar með áherslu á vandað umhverfi að teknu tilliti til öryggismála, til að mynda áhrifa mannvirkja og gróðurs á sýnileika við gatnamót og umferðarhraða.
Landslagsarkitektastofan Landform á Selfossi vann tillögu að reglum um girðingar, skjólveggi og smáhýsi sem nú hafa verið samþykktar ásamt leiðbeiningum um umhverfi og ásýnd garða, götumynda og bæjarbragsins í heild. Voru reglur og leiðbeiningar kynntar á íbúafundi sem haldinn var þann 24. febrúar s.l. á Hótel Örk.
Reglur um girðingar, skjólveggi og smáhýsi.
Leiðbeiningar um girðingar, skjólveggi og smáhýsi.