Niðurstöður Íbúaþings 60+ þann 22. mars 2025
Laugardaginn 22. mars 2025 var haldið Íbúaþing 60+ á Hótel Örk í Hveragerði, kl. 11:00–13:00. Öldungaráð Hveragerðisbæjar stóð fyrir þinginu og var markmiðið að virkja íbúa til þátttöku og greiningar á þörfum málaflokksins. Þinginu var ætlað að skapa vettvang fyrir eldri íbúa og fagaðila til að ræða þarfir og hugmyndir í tengslum við þjónustu og málefni 60 ára og eldri.
Hér að neðna má finna helstu niðurstöður en skjalið í heild má nálgast hér.
Í lok þings lágu fyrir 33 erindisblöð. Niðurstöður gefa skýrar vísbendingar um helstu áherslur og þarfir þeirra sem mættu á þingið.
Íbúðir og þjónustukjarni fyrir 60+
Svör þátttakenda undirstrika þörf á íbúðum fyrir 60 ára og eldri ásamt þjónustukjarna sem sameinar ýmsa þjónustu líkt og mötuneyti, snyrtistofu og afþreyingu. Með slíkri þjónustu er dregið úr líkum á félagslegri einangrun á sama tíma og stutt er við færni og vellíðan. Áhersla var lögð á að tryggja félagslega og færnimiðaða búsetu mt.t. stefnu í málefnum eldri borgara í Hveragerði.
Félagsmiðstöð fyrir 60+
Þátttakendur kalla eftir öflugri og rúmgóðri aðstöðu fyrir tómstundir og samkomur. Húsnæði sem núna er í notkun uppfyllir ekki þarfir vaxandi fjölda eldri íbúa, sérstaklega utan hefðbundins dagvinnutíma.
Fjölbreyttari þjónusta
Þátttakendur vildu stærra og betra húsnæði fyrir íþrótta- og tómstundaúrræði ásamt möguleika fyrir samkomur. Þó kom fram að margt gott er í boði en bæta mætti eftirfarandi atriði: Bæta við starfsfólki sem sinnir málaflokknum, aukinn stuðning við maka og aðstandendur, markvissari öryggisinnlit, fræðsla um tækjanotkun í æfingarsal,
aðstoð við tæknimál og meiri áhersla á valdeflingu og endurhæfingu. Einnig var bent á þörf fyrir styttri biðtíma eftir læknum.
Upplýsingagjöf
Kallað var eftir markvissari og aðgengilegri upplýsingamiðlun. Allar upplýsingar um úrræði og þjónustu sem ætlað er íbúum 60 ára og eldri ættu að vera aðgengilegar á einum stað, bæði rafrænt og útprentað í formi bæklings. Einnig kom fram ósk um að Öldungaráðið yrði sýnilegra og aðgengilegra.
Hreyfi- og tómstundaúrræði
Þátttakendur óskuðu eftir meira framboði af hreyfingu, tómstundum og fræðslu tengdri heilbrigðu líferni. Óskir komu fram um fleiri tíma í vatnsleikfimi, æfingar fyrir einstaklinga með skerta færni og aðgengi að gróðurhúsum.
Aðgengismál
Bent var á að bæta þurfi aðgengi í sundlaugina Laugaskarð og kjallara Hamarssports þar sem heilsuefling 60+ fer fram.
Ályktun og næstu skref
Niðurstöður íbúaþingsins veita dýrmætar vísbendingar um þarfir og óskir eldri íbúa í Hveragerði og verða nýttar við áframhaldandi þróun á þjónustu við málaflokk eldri íbúa samhliða stefnu í málefnum eldri borgara Hveragerðis.