Fara í efni

Margrét Guangbing Hu badmintonkona var kosin íþróttamaður Hamars ársins 2019

Aðalfundur Íþróttafélagsins Hamar var haldinn sunnudaginn 16. febrúar síðast liðinn.

Á fundinum var Margrét Guangbing Hu, badmintonkona, heiðruð sem Íþróttamaður ársins 2019. Margréti hefur sýnt miklar framfarir á árinu en hún var valin í Unglingalandsliðið U15 síðasta vetur og í U17 ára landsliðið í haust. Hún var einnig valin í æfingabúðir landsliða sem fóru fram á Grænlandi á liðnu sumri. Hún var í úrvalshóp Badmintonsambands Íslands en Margrét er farin að keppa í A-flokki fullorðinna þó hún sé enn skráð í B-flokk. Margrét hefur staðið sig vel á mótum ársins en hún var oftar en ekki á verðlaunapalli í sínum flokkum. Hún hampaði Íslandsmeistaratitli í flokki 15 ára unglinga og í tvíliðaleik í A flokki kvenna.

Við óskum Margréti innilega til hamingju með titilinn og hlökkum til að fylgjast með henni á komandi árum.

 

Síðast breytt: 19. febrúar 2020
Getum við bætt efni síðunnar?