Fara í efni

Leikskólinn Óskaland óskar eftir einstakling til að vera stuðningur við barn með sykursýki týpu 1

Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum einstaklingi með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti sýnt frumkvæði og unnið sjálfstætt og í hóp.  

Menntun og reynsla sem gæti nýst í starfi:

  • Starf með börnum
  • Reynsla af sykursýki 1 
  • Leikskólaliðamenntun

  • Sjúkraliðamenntun eða önnur menntun á heilbrigðissviði

Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að taka þátt í uppeldi og menntun barna í nánu samstarfi við stjórnendur og hafa gott vald á  íslenskri tungu. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Fríðindi í starfi:

  • Forgangur í leikskólapláss  
  • Frítt fæði 
  • Stytting vinnuvikunnar  
  • Sundkort í sundlaugina í Laugaskarði 

Umsóknum skal skilað á netfangið: oskaland@hveragerdi.is ásamt ferliskrá. 
Nánari upplýsingar veita Gunnvör Kolbeinsdóttir skólastjóri  og Eva Hrönn Jónsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 4834139 eða á netfangið: oskaland@hveragerdi.is . Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru greidd  samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. 


Síðast breytt: 17. febrúar 2026
Getum við bætt efni síðunnar?