Leikskólinn Óskaland óskar eftir einstakling til að vera stuðningur við barn með sykursýki týpu 1
Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum einstaklingi með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti sýnt frumkvæði og unnið sjálfstætt og í hóp.
Menntun og reynsla sem gæti nýst í starfi:
- Starf með börnum
- Reynsla af sykursýki 1
- Leikskólaliðamenntun
- Sjúkraliðamenntun eða önnur menntun á heilbrigðissviði
Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að taka þátt í uppeldi og menntun barna í nánu samstarfi við stjórnendur og hafa gott vald á íslenskri tungu. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Fríðindi í starfi:
- Forgangur í leikskólapláss
- Frítt fæði
- Stytting vinnuvikunnar
- Sundkort í sundlaugina í Laugaskarði
Umsóknum skal skilað á netfangið: oskaland@hveragerdi.is ásamt ferliskrá.
Nánari upplýsingar veita Gunnvör Kolbeinsdóttir skólastjóri og Eva Hrönn Jónsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 4834139 eða á netfangið: oskaland@hveragerdi.is . Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.