Fara í efni

Sumarstörf hjá Hveragerðisbæ 2026

Sumarstörf hjá Hveragerðisbæ 2026

Eftirtalin sumarstörf eru í boði fyrir einstaklinga 18 ára og eldri:

Garðyrkjudeild Hveragerðisbæjar auglýsir eftir tveimur einstaklingum í sumarstarf/flokksstjórn vinnuskóla

Garðyrkjudeild leitar að skemmtilegum og ábyrgum einstaklingum í stöðu flokkstjóra vinnuskóla Hveragerðisbæjar.

Flokkstjóri þarf að vera orðinn 19 ára, hafa áhuga á að vinna úti og með börnum.

Flokkstjóri stýrir vinnuhópum m.a. við garðyrkjustörf og umhirðu opinna svæða í Hveragerði.

Vinnutími er virka daga kl. 8 til 17.00 nema á föstudögum er vinnutími kl. 8 til 12.00.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun júní 2026 og starfað til loka ágúst 2026.

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2026.

Frekari upplýsingar veitir Árný Guðfinnsdóttir garðyrkjufulltrúi, arnygg@hveragerdi.is
Sótt er um starfið á íbúagátt Hveragerðisbæjar undir mannauðsmál.

______________________________________________________________

Heimilið Birkimörk
Óskum eftir að ráða starfsfólk, 18 ára og eldra, í sumarafleysingar á heimili fatlaðs fólks. Í boði eru áhugaverð störf við að aðstoða fatlað fólk við heimilishald, félagslega þátttöku og athafnir daglegs lífs. Um er að ræða vaktavinnu og eru laun greidd skv. gildandi kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga. Nánari upplýsingar veitir Steinunn Jónsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi, birkimork@hveragerdi.is, sími 483-4030 alla virka daga frá kl. 8-16.

_______________________________________________________________

Áhaldahús Hveragerðisbæjar – auglýsir eftir tveimur einstaklingum sumarstarf við almenna umhirðu bæjarins

Umhverfissvið leitar að skemmtilegu og ábyrgu starfsfólki í ýmis störf t.d. í almenna umhirðu opinna svæða og fleiri umhverfisverkefni.

Æskilegur aldur starfsfólks er 18 ára og eldra. Þá er æskilegt að starfsfólk sé með bílpróf.

Vinnutími er virka daga kl. 8 til 17.00 nema á föstudögum er vinnutími kl. 8 til 12.00.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun júní 2026 og starfað til loka ágúst 2026.

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2026.

Nánari upplýsingar veitir Höskuldur Þorbjarnarson, umhverfisfulltrúi, hoskuldur@hveragerdi.is

Sótt er um starfið á íbúagátt Hveragerðisbæjar undir mannauðsmál.


Síðast breytt: 28. apríl 2026
Getum við bætt efni síðunnar?