Heimilið birkimörk leitar eftir sumarstarfsmanni
01.06
Frétt
Heimilið Birkimörk
Óskum eftir að ráða starfsfólk, 18 ára og eldra, í sumarafleysingar á heimili fatlaðs fólks. Í boði eru áhugaverð störf við að aðstoða fatlað fólk við heimilishald, félagslega þátttöku og athafnir daglegs lífs.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Um er að ræða vaktavinnu og eru laun greidd skv. gildandi kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga. Nánari upplýsingar veitir Steinunn Jónsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi, birkimork@hveragerdi.is, sími 483-4030 alla virka daga frá kl. 8-16.
Síðast breytt: 1. júní 2026
Getum við bætt efni síðunnar?