Félagsráðgjafi í barnavernd – Hveragerðisbær leitar að öflugum liðsmanni
Velferðarsvið Hveragerðisbæjar auglýsir laust til umsóknar 100% starf félagsráðgjafa/ráðgjafa í barnavernd.
Leitað er að fagmanneskju sem brennur fyrir velferð barna og fjölskyldna, býr yfir sterkri fagmennsku og hefur getu til að vinna sjálfstætt í krefjandi umhverfi. Helstu verkefni er meðferð og vinnsla barnaverndarmála og eftirfylgni þeirra.
Hveragerðisbær er öflugt, vaxandi samfélag sem leggur mikla áherslu á velferð og málefni fjölskyldna og barna. Á velferðarsviði er lögð áhersla á þverfaglega vinnu og stuðning starfsmanna í teymisstarfi við úrlausn margþættra verkefna sem tengjast fjölskyldum og börnum með það markmið að efla lífsgæði og hagsæld þeirra.
Helstu verkefni:
- Málsmeðferð barnaverndarmála samkvæmt barnaverndarlögum
- Ráðgjöf við foreldra og börn
- Greining, úrvinnsla og eftirfylgd mála í samstarfi við börn, foreldra og aðra fagaðila
- Samstarf við skóla, heilbrigðisþjónustu, lögreglu og aðrar stofnanir
- Skráning og skjalavarsla í málaskráningarkerfi
- Þátttaka í þróun og umbótum í þjónustu barnaverndar
Hæfniskröfur:
- Próf í félagsráðgjöf og gilt starfsleyfi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Þekking á barnaverndarlöggjöf og reynsla af barnaverndarstarfi er kostur
- Þekking á One System og Navision er kostur
- Góð hæfni í samskiptum, samvinnu og faglegri framkomu
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð tölvukunnátta og færni í að nýta rafræn kerfi
- Hreint sakavottorð
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Öll kyn eru hvött til að sækja um stöðuna.
Um er að ræða 100% starf. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 1. september 2025 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Sótt er um starfið í gegnum íbúgátt Hveragerðisbæjar - mannuðsdeild > starfsumsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Erna Harðar Solveigardóttir deildarstjóri velferðarsviðs. Netfang: erna@hvergerdi.is – sími: 483-4000