Fara í efni

Félagsráðgjafi í barnavernd – Hveragerðisbær leitar að öflugum liðsmanni

Velferðarsvið Hveragerðisbæjar auglýsir laust til umsóknar 100% starf félagsráðgjafa/ráðgjafa í barnavernd.

Leitað er að fagmanneskju sem brennur fyrir velferð barna og fjölskyldna, býr yfir sterkri fagmennsku og hefur getu til að vinna sjálfstætt í krefjandi umhverfi. Helstu verkefni er meðferð og vinnsla barnaverndarmála og eftirfylgni þeirra.

Hveragerðisbær er öflugt, vaxandi samfélag sem leggur mikla áherslu á velferð og málefni fjölskyldna og barna. Á velferðarsviði er lögð áhersla á þverfaglega vinnu og stuðning starfsmanna í teymisstarfi við úrlausn margþættra verkefna sem tengjast fjölskyldum og börnum með það markmið að efla lífsgæði og hagsæld þeirra.

Helstu verkefni:

  • Málsmeðferð barnaverndarmála samkvæmt barnaverndarlögum
  • Ráðgjöf við foreldra og börn
  • Greining, úrvinnsla og eftirfylgd mála í samstarfi við börn, foreldra og aðra fagaðila
  • Samstarf við skóla, heilbrigðisþjónustu, lögreglu og aðrar stofnanir
  • Skráning og skjalavarsla í málaskráningarkerfi
  • Þátttaka í þróun og umbótum í þjónustu barnaverndar

Hæfniskröfur:

  • Próf í félagsráðgjöf og gilt starfsleyfi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking á barnaverndarlöggjöf og reynsla af barnaverndarstarfi er kostur
  • Þekking á One System og Navision er kostur
  • Góð hæfni í samskiptum, samvinnu og faglegri framkomu
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Góð tölvukunnátta og færni í að nýta rafræn kerfi
  • Hreint sakavottorð

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Öll kyn eru hvött til að sækja um stöðuna.

Um er að ræða 100% starf. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 1. september 2025 eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Sótt er um starfið í gegnum íbúgátt Hveragerðisbæjar - mannuðsdeild > starfsumsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Erna Harðar Solveigardóttir deildarstjóri velferðarsviðs. Netfang: erna@hvergerdi.is – sími: 483-4000


Síðast breytt: 23. júní 2025
Getum við bætt efni síðunnar?