Fara í efni

Deildarstjóri og leikskólakennarar óskast til starfa á Óskaland

Leikskólinn Óskaland, Finnmörk 1, Hveragerði auglýsir eftir metnaðarfullum deildarstjóra á deild fyrir börn frá 2ja til 3ja ára aldri vegna fæðingarorlofs með möguleika á áframhaldandi ráðningu og leikskólakennurum/leiðbeinendum á aðrar deildir.

Leikskólinn Óskaland er níu deilda leikskóli í vaxandi gróskumiklu bæjarfélagi. Í leikskólanum starfar áhugasamt og metnaðarfullt starfsfólk og þar stunda fyrirmyndar börn nám sem þurfa fleiri áhugasama kennara.

Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum einstaklingum með góða hæfni í mannlegum samskiptum.

Hæfniskröfur: Leikskólakennaramenntun:

  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Gott vald á íslenskri tungu
  • Hreint sakavottorð

Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og eða reynslu kemur vel til greina að ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður! Starfið hentar öllum kynjum.

Umsóknarfrestur er til 10.október n.k. Umsóknum skal skilað á netfangið: oskaland@hveragerdi.is

Nánari upplýsingar veita Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólastjóri og Eva Hrönn Jónsdóttir aðst.leikskólastjóri í síma 4834139 eða á netfangið: oskaland@hveragerdi.is

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Með umsókn um störfin skal fylgja afrit af leyfisbréfi, skrá yfir starfsferil og menntun og upplýsingar um umsagnaraðila.


Síðast breytt: 6. október 2025
Getum við bætt efni síðunnar?