Fara í efni

Borhola í blæstri

Mánudaginn 20. júlí til þriðjudagsins 21. júlí verður ein gufuhola Orku náttúrunnar í Hverahlíð látin blása. Þetta er gert til að fríska upp á hana og kanna krafta. Holublástur fer þannig fram að holan er opnuð svo að gufan stígur upp í loft af töluverðum krafti. Þrátt fyrir að hljóðdeyfir sé á holunni fylgir þessu hávaði sem getur heyrst á nálægum svæðum og við vissar veðurfarsaðstæður í Hveragerði.

Uppfærð frétt 24.07.26

Í upphaflegri frétt kemur fram  að blásturinn standi yfir 20.-21. júlí en venjulega taka þessar aðgerðir alltaf 2-3 vikur. Vonandi verða íbúar ekki fyrir miklu ónæði af blæstrinum.

Sjá frétt á vef ON. 

Kær kveðja 
starfsfólk ON


Síðast breytt: 24. júlí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?