Borhola í blæstri
15.07
Frétt
Mánudaginn 20. júlí til þriðjudagsins 21. júlí verður ein gufuhola Orku náttúrunnar í Hverahlíð látin blása. Þetta er gert til að fríska upp á hana og kanna krafta. Holublástur fer þannig fram að holan er opnuð svo að gufan stígur upp í loft af töluverðum krafti. Þrátt fyrir að hljóðdeyfir sé á holunni fylgir þessu hávaði sem getur heyrst á nálægum svæðum og við vissar veðurfarsaðstæður í Hveragerði.
Kær kveðja
starfsfólk ON
Síðast breytt: 15. júlí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?