Fara í efni

Leshringur

Bókasafnið í Hveragerði 21. mars | 17:00-18:00

Þar sem síðasta fimmtudag marsmánuðar ber upp á skírdag flýtum við leshringnum um eina viku og hittumst fimmtudaginn 21. mars kl. 17. Bókin sem við ætlum að fjalla um er ævisaga Guðrúnar Ásmundsdóttur leikkonu, Ég og lífið. Það verður heitt á könnunni að vanda og öll velkomin. Eintök af bókinni má nálgast í afgreiðslu bókasafnsins.

Um bókina:

"Ævi mín er sannkölluð öskubuskusaga" segir leikkonan, leikstjórinn og höfundurinn Guðrún Ásmundsdóttir. Æskan var afar sérstæð, en Guðrún ólst upp hjá öldruðum föður þar sem hún breytti stofunni í leikhús og sótti áhorfendur út á götu. Hún segir frá leiklistarnámi, áhrifavöldum í lífi sínu og talar opinskátt um einkalíf sitt."

Getum við bætt efni síðunnar?