Einar Áskell í Hveragerðiskirkju
Hveragerðiskirkja
15. mars | 12:30-13:30
Sunnudaginn 15.mars verður boðið upp á brúðuleiksýninguna um Einar Áskel eftir brúðmeistarann Bernd Ogrodnik sem byggir á heimsþekktum sögum Gunillu Bergström um hinn uppátækjasama Einar Áskel. Við fylgjumst með viðburðaríkum degi í lífi feðganna Einars Áskels og pabba hans þar sem daglegt líf fær á sig ljóma ævintýrs eins og tilvera okkar allra getur gert á augabragði ef við opnum fyrir leikinn, sköpunina og ímyndunaraflið.
Leiksýningin er samstarfsverkefni Eyrarbakkaprestakalls, Hveragerðisprestakalls og Selfossprestakalls og er kostuð af Héraðssjóði Suðurprófastdæmis. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!
Getum við bætt efni síðunnar?