Stóri Plokkdagurinn 2026
Lystigarðurinn - Fossaflöt
26. apríl | 11:00
Stóri plokkdagurinn verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 26. apríl 2026 næstkomandi. Eftir veturinn bíður okkur heilmikið verkefni við að hreinsa allt sem undan snjónum kom ásamt öllu öðru rusli sem finnst á víðavangi. Við þurfum öll að leggjast á eitt og ná frábærum árangri.
Plokkið er ráðlagður dagskammtur af hreyfingu og um leið frábær skemmtun.
Plokkið er einnig:
- Frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa
- Einstaklingsmiðað
- Hver á sínum hraða
- Frábært fyrir umhverfið
- Fegrar nær samfélagið
- Öðrum góð fyrirmynd
Við ætlum að hittast við Lystigarðinn fossflöt klukkan 11:00 á sunnudaginn þar sem tínur og pokar verða til staðar.
Getum við bætt efni síðunnar?