Fara í efni

Opnun ljósmyndasýningar um sögu Hveragerðis

Breiðumörk 2 13. júlí | 17:00-18:00

Ljósmyndasýningin Hveragerði og Hvergerðingar verður opnuð mánudaginn 14. júlí klukkan 17 að Breiðumörk 2 (áður Álnavörubúðin). Sýningin er staðsett í glugga hússins svo unnt verður að skoða sýninguna utan við gluggann allan sólarhringinn.

Sýningin er sett upp í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar og segir sögu Hveragerðis og Hvergerðinga í myndum frá upphafi byggðar til okkar daga. Sýningin telur 170 myndir og er unnin fyrir Hveragerðisbæ af Ívari Gissurarsyni útgefanda og íbúa í Hveragerði.

Verið öll hjartanlega velkomin á opnunina.

Hér fyrir neðan má sjá efnisyfirlit sýningarinnar.

Getum við bætt efni síðunnar?