Leik og Sprell
Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.
Kennt er tímabilið 23.-27. júní, kl. 9:00-12:00, verð: 28.000 kr. Athygli er vakin á því að hægt er að nýta frístundastyrkinn. Kennari námskeiðsins er Berglind María Ólafsdóttir.
Nánari upplýsingar um námskeið, kennara og skráningu má finna á leikogsprell.is
Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt einnig hafa samband á leikogsprell@gmail.com
Hlökkum til að sprella með ykkur í sumar!