Íbúafundur um deiliskipulag Grundarreitar á Heiðmörk 30-36
Salur Grunnskólans
22. apríl | 17:00-18:30
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Grundarreitar á fundi sínum þann 9. apríl s.l. Tillagan gerir ráð fyrir íbúðabyggð á reitnum sem áður hýsti atvinnustarfsemi.
Samhliða auglýsingu deiliskipulagstillögunnar í Skipulagsgátt, þar sem opið verður fyrir athugasemdir, er boðið til kynningarfundar í grunnskólanum n.k. miðvikudag þann 22. apríl kl. 17.
Öll velkomin!
skipulagsfulltrúi
Getum við bætt efni síðunnar?