Fara í efni

Hanna Karaseva sýnir á Bókasafninu í Hveragerði

Bókasafnið í Hveragerði 23. jún - 4. júl

Belarúsíska myndlistakonan og myndlistarkennarinn Hanna Karaseva heimsótti Ísland sumarið 2024. Hún dvaldi í Hveragerði í tvær vikur og ferðaðist mikið um Suðurland og kolféll fyrir landinu; bæði landslagi, byggingum og fleiru. Hanna teiknaði og málaði mikið á meðan á dvölinni stóð og áfram eftir heimkomuna til Belarús.

Myndirnar á sýningunni eru afrakstur Íslandsheimsóknar hennar en sýningin ber yfirskriftina  Ísland: Snerti hjarta mitt.

Hanna er fædd árið 1986 og býr og starfar í Vítebsk í Belarús. Hún vinnur aðallega með pastelliti, akrýl, olíu og klippimyndir. Hún hefur haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga.

Sýningin, sem er sölusýning, mun standa frá 23. júní til 4. júlí og er opin á sama tíma og bókasafnið, virka daga frá 12-18. 

Getum við bætt efni síðunnar?