Fara í efni

Fegrunarátak - tökum höndum saman!

Hveragerði 13.-19. júl

Hveragerðisbær efnir til sameiginlegs hreinsunar- og fegrunarátaks dagana 13.-19. júlí nk. og hvetur alla bæjarbúa til að leggjast á eitt við að gera bæinn okkar hreinan og fínan.

Hveragerðisbær fagnar 80 ára afmæli á árinu og því er sérstakt tilefni til að leggja áherslu á snyrtilegt og aðlaðandi bæjarumhverfi.

Hvert handtak skiptir máli, hvort sem verkefnið felst í að tína rusl, snyrta gróður, fjarlægja garðaúrgang, laga til við lóðina, losna við gömul bílhræ eða mála.

 

Gjaldfrjálst á Gámasvæðinu

Gjaldfrjálst verður fyrir almenning á Gámasvæði Hveragerðisbæjar alla vikuna og aukaopnun á sunnudeginum 19. júlí kl. 12-16.

Almennur opnunartími gámasvæðis er sem hér segir:

Mánudaga til föstudaga frá 15:00 - 18:00
Laugardaga 12:00-16:00

 

Förgun stórra/þungra hluta

Áhaldahús Hveragerðisbæjar aðstoðar eða veitir ráð til að fjarlægja stóra og/eða þunga hluti svo sem bílhræ, vélarhluti, trampólín, gamla þvottavél sem stendur úti, tunnu af olíu eða annað slíkt, eigendum að kostnaðarlausu.

Vinsamlegast hafið samband við móttöku bæjarskrifstofu til að óska eftir aðstoð. Netfangið er mottaka@hveragerdi.is og símanúmer bæjarskrifstofu er 483 4000.

Opnunartíminn er eftirfarandi:

Mánudagar -fimmtudagar kl. 9-16
föstudagar kl. 9-12

 

Rusl tínt á víðavangi

Þeir sem tína rusl á víðavangi geta haft samband við áhaldahús og starfsmenn þaðan sækja ruslið. Það á sérstaklega við um það sem er stórt, í miklu magni eða þess eðlis að heppilegra sé að starfsmenn bæjarins sæki.

Vinsamlegast hafið samband við móttöku bæjarskrifstofu til að óska eftir aðstoð. Netfangið er mottaka@hveragerdi.is og símanúmer bæjarskrifstofu er 483 4000.

Opnunartíminn er eftirfarandi:

Mánudagar -fimmtudagar kl. 9-16
föstudagar kl. 9-12

 

Ábendingar óskast

Óskað er eftir ábendingum um þau svæði þar sem bæta mætti umhirðu og ásýnd. Ábendingar fara til áhaldahúss og garðyrkjudeildar til úrvinnslu.

Hlekkur á nafnlaust eyðublað. Ábendingar um fegrun í Hveragerði – Fill out form

 

Deilum árangrinum

Við hvetjum ykkur til að taka myndir fyrir og eftir tiltekt og deila með okkur á Instagram Hveragerðisbæjar, @hveragerdi.is, eða með myllumerkinu #FagraHveragerði

Leggjum okkar af mörkum – saman gerum við blómabæinn okkar enn blómlegri!

Getum við bætt efni síðunnar?