Elísabet Jökuls sýnir á Bókasafninu í Hveragerði
Bókasafnið í Hveragerði
13.-20. jún
Elísabet Jökulsdóttir sýnir á Bókasafninu í Hveragerði frá 2.-20. júní.
Myndefnið að þessu sinni eru skemmtilegir og fjölbreyttir selir frá Ytri-Tungu á Snæfellsnesi sem Elísabet málaði þegar henni leiddist.
Elísabet er þekkt fyrir bækur sínar og leikrit. Hún hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir verk sín upp á síðkastið, m.a. Grímuverðlaun fyrir besta leikritið, Saknaðarilm, ásamt Unni Ösp Stefánsdóttur.
Sýningin, sem er sölusýning, stendur til 20. júní og er opin á sama tíma og bókasafnið, virka daga kl. 12-18.
Getum við bætt efni síðunnar?