Bókaklúbbur
Fyrsti fundur bókaklúbbsins þennan veturinn verður fimmtudaginn 6. nóvember kl. 17-18.
Þá ætlum við að fjalla um bókina Akam, ég og Annika eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur en Þórunn ætlar að mæta spjalla við okkur um bókina og jafnframt kynna nýja bók sína.
Akam, ég og Annika sem gefin út sem unglingabók en höfðar ekki síður til fullorðinna.
Um bókina:
Hrafnhildur neyðist til að flytja til Þýskalands með fjölskyldu sinni þegar stjúpfaðir hennar fær þar vinnu. Nýi skólinn er mjög strangur og hún saknar pabba síns og ömmu, en aðallega bestu vinkonu sinnar. Þegar hún kynnist hinum krökkunum í skólanum renna hins vegar á hana tvær grímur. Vissulega er erfitt að vera nýja stelpan í bekknum, mállaus og vinalaus, en það virðist vera til verra hlutskipti. Hrafnhildur þarf á öllu sínu hugrekki að halda þegar hún tekst á við áskoranir sem hana hefði ekki einu sinni grunað að væru til. Hverjum getur hún eiginlega treyst? Af hverju vill Annika endilega vera vinkona hennar – og í hvaða vandræðum er Akam?
Það verður heitt á könnunni að vanda og öll velkomin. Eintök af bókinni má nálgast í afgreiðslu bókasafnsins.