Fara í efni

Skólar lokaðir á mánudag - starfsdagur.

Tilkynning vegna skólastarfs !

UPPFÆRT:  Hefðbundið skólastarf hefur verið fellt niður til 24. mars.  Kennslu verður sinnt eftir öllum mögulegum leiðum öðrum. 

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem fela m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Um er að ræða tímabilið frá 16. mars til 12. apríl. Markmið með takmörkun skólastarfs er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19.

Starfsdagur verður mánudaginn 16. mars. Þann dag nýta stjórnendur og starfsmenn skólanna til að skipuleggja skólastarfið í takti við þær skorður sem takmarkanirnar vegna COVID-19 setja hefðbundnu starfi skólanna og stofnana þeirra.

Skólasel verður lokað mánudaginn 16. mars og gripið verður til fjöldatakmarkana þegar starfsemi hefst að nýju.  Fyrirkomulag skólastarfs næstu vikurnar verður vel kynnt þegar skipulag þess liggur fyrir. 

Foreldrar/forráðamenn eru beðnir um að fylgjast með upplýsingum á heimasíðu bæjarins og skólanna, samfélagsmiðlum og tölvupósti um helgina. Í undirbúningi eru hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga leiðbeiningar um frístundastarf, íþróttastarf, starf tónlistarskóla og aðrar tómstundir barna og verða þær kynntar í lok helgarinnar.

Þar sem um fordæmalausar aðstæður er að ræða hafa foreldrar val um að halda börnum sínum heima. Það ber að tilkynna líkt og áður.

Allir eru beðnir um að kynna sér leiðbeiningar varðandi samkomubann og takmarkanir á skólastarfi sem kynntar hafa verið sem og almennar leiðbeiningar varðandi smitvarnir sem sjaldan eða aldrei hafa verið nauðsynlegri en nú. 

Hér má lesa meira um umræddar aðgerðir stjórnvalda. 


Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri. 


Síðast breytt: 25. mars 2020
Getum við bætt efni síðunnar?