Vilhjálmur Roe er heiðursborgari Hveragerðisbæjar
Vilhjálmur Björn Hannes Roe var útnefndur heiðursborgari Hveragerðisbæjar á 80 ára afmælisdegi bæjarins í gær og er hann fyrstur íbúa til að hljóta þá heiðursnafnbót.
Villi Roe eins og bæjarbúar þekkja hann, hefur með einstakri þjónustulund aðstoðað Hvergerðinga og aðra gesti í Shell-skálanum í hartnær 40 ár og hefur á þeim tíma sett mark sitt á bæjarfélagið okkar.
Leið Villa Roe lá fyrst í Hveragerði árið 1987 þegar hann ákvað að koma í nokkra mánuði og aðstoða Ninnu systur sína í Skálanum. Hann óskaði eftir stuttu launalausu leyfi frá SVR þar sem hann starfaði en það leyfi stendur enn yfir, því enn stendur hann vaktina í Shell-skálanum.
Villi sá fljótt fegurðina í Hveragerði og tækifærin í samfélaginu. Þegar hann tók formlega við rekstrinum árið 1988 þá hófst nýr kafli hjá bæði Villa og bæjarbúum. Með elju sinni og dugnaði lét hann byggja nýjan og glæsilegan skála sem var opnaður árið 1991 og varð strax mikilvægur miðpunktur fyrir bæjarbúa jafnt sem aðra gesti.
Villi var ekki bara rekstraraðili; hann var andlit bæjarins út á við. Þjónusta hans einkenndist af hlýju, fagmennsku og þeim sjaldgæfa eiginleika að láta hverjum og einum viðskiptavini líða eins og hann væri einstakur. Hann byggði upp farsælan rekstur á grunni vinnusemi og góðmennsku.
Villi er einnig ríkur fjölskyldumaður. Kolbrún Hilmarsdóttir eiginkona Villa hefur alla tíð staðið þétt við bakið á honum og þau hjónin, ásamt börnunum þeirra, verið samheldin fjölskylda. Þessi blanda af sterkum fjölskyldugildum og samfélagslegri ábyrgð gerir Villa að verðugum heiðursborgara.
Villi sagði eitt sinn að Hveragerði væri „yndislegur staður“ og að ákvörðunin um að setjast hér að væri „ekki flókið mál“. Við bæjarbúar erum honum ævinlega þakklátir fyrir þá ákvörðun. Hann sýnir okkur hvernig einn maður getur haft áhrif á heilt samfélag með því að leggja metnað í starf sitt og bera hag heildarinnar fyrir brjósti og með því að koma vel fram við alla.
Hvort sem það er rjómi í jólasósuna kl.15:00 á aðfangadegi eða bensínlaus bíll á nýársdegi fyrir tíma sjálfsafgreiðslunnar, þá kom Villi til bjargar.
Í bókun hátíðarfundar bæjarstjórnar sem haldinn var á Hótel Örk í gær, á afmælisdegi bæjarins, kom eftirfarandi fram:
„Með útnefningu þessari vill Hveragerðisbær sýna Vilhjálmi Roe þakklæti fyrir óeigingjarnt starf, einstaka þjónustulund og þann hlýhug sem hann hefur sýnt samfélaginu í tæpa fjóra áratugi. Hann er sannur og verðugur heiðursborgari.“
Innilega til hamingju Villi!
