Fara í efni

Vetrarbraut í Hveragerði

Tilboð Icebikeadventures ehf um að hanna, leggja, kynna og sjá um Vetrarstíg í Hveragerði var samþykkt á fundi bæjarráðs Hveragerðisbæjar þann 19. nóvember s.l. Í verkefninu felst að um leið og snjóar nægilega mun fyrirtækið troða fjölnota-spor sem hjólandi, gangandi, hlaupandi og skíðandi geta nýtt sér. Verður stígurinn í dalnum ofan við Hveragerði, Vorsabæjarvöllum, og á golfvelli Hvergerðinga. Verður um að ræða tvær brautir annars vegar 6 km og hins vegar 4 km.

Í minnisblaði bæjarstjóra sem lagt var fram á fundinum kemur fram að forsvarsmenn fyrirtækisins telja að verkefnið geti verið íbúum til heilsubótar og skemmtunar og dregið að innlenda ferðamenn í vetur - gönguskíðafólk, hjólreiðamenn, göngufólk og hlaupara sem nú þyrstir í nýjar leiðir og upplifanir. Gera má ráð fyrir að brýn þörf verði á afþreyingarmöguleikum fyrir almenning í vetur sem samræmast hvers kyns samkomutakmörkunum

Bæjarráð hefur heimilaði að stígurinn verði troðinn í allt að 12 skipti á tímabilinu í janúar til mars 2021 . Í bókun bæjarráðs kom fram að með tilkomu sérstakrar brautar á skógræktarsvæðinu inní Dal verður til alveg nýr möguleiki á iðkun fjölbreyttar útivistar yfir vetrarmánuðina. Með samstarfi við Icebikeadventures ehf mun þessi möguleiki hljóta góða kynningu og vonandi verða til þess að fleiri en Hvergerðingar fái notið svæðisins.

Hveragerði er vel staðsett bæjarfélag í einungis 30 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Í bæjarfélaginu eru margir skemmtilegir gisti- og veitingastaðir auk afþreyingar. Með tilkomu skipulagðs stígs að vetrarlagi sem nýst getur til fjölbreyttrar útivistar getur Hveragerðisbær boðið gestum bæjarins og íbúum enn eina afþreyinguna og þannig ýtt undir atvinnulíf og bætt búsetu skilyrði í bæjarfélaginu.

Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri


Síðast breytt: 27. nóvember 2020
Getum við bætt efni síðunnar?