Fara í efni

Sértæk stuðningsþjónusta

Sértæk stuðningsþjónusta

Sértæk stuðningsþjónusta er ætluð einstaklingum 59 ára og yngri sem þurfa einstaklingsmiðaðan stuðning. Markmið þjónustunnar er að valdefla einstaklinga til sjálfstæðis, efla færni og auka lífsgæði. Áhersla er lögð á styrkleika og markmið hvers einstaklings og að stuðningurinn taki mið af þörfum og aðstæðum hans.

Stuðningurinn getur meðal annars falist í að:

  • vinna að persónulegum markmiðum og auknu sjálfstæði
  • efla færni, sjálfstraust og trú á eigin getu
  • styðja við virkni, þátttöku og félagsleg tengsl
  • draga úr félagslegri einangrun
  • styðja við dagleg verkefni og áskoranir

Þeir sem þurfa aðstoð eða stuðning við umsóknarferlið geta bókað viðtal hjá félagsráðgjafa velferðarsviðs.
Sími: 4834000

Reglur Hveragerðisbæjar um stuðningsþjónustu eru í vinnslu

Þjónusta er framkvæmd samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

Síðast breytt: 26.08.2026