Uppspretta Suðurlands 2026
22.10
Frétt
Uppspretta Suðurlands verður haldin 6. nóvember 2026 í Horseday-höllin í Ölfusi. Á Uppsprettuni verður kastljósinu beint að þeim gríðarlega krafti, hugviti og tækifærum sem búa á Suðurlandi. Hátíðin sameinar ráðstefnu, atvinnulífssýningu og tengslamyndun þar sem frumkvöðlar, starfandi fyrirtæki, fjárfestar, sveitarfélög og almenningur koma saman. Markmiðið er að gefa fyrirtækjum á Suðurlandi tækifæri til að vera sýnileg, skapa ný tengsl og vera hluti af samtalinu um framtíð atvinnulífs á Suðurlandi í lifandi og spennandi dagskrá.
Sjá nánar um hátíðina hér.
Síðast breytt: 22. október 2026
Getum við bætt efni síðunnar?