Umsóknir vegna styrkja til húsverndar
Hveragerðisbær óskar eftir umsóknum vegna veitingar styrkja til húsverndar en styrkir eru veittir til þess að styðja við varðveislu og viðhald mannvirkja í Hveragerðisbæ sem eru friðlýst, friðuð eða hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. Styrkir eru almennt ekki veittir fyrir venjulegt viðhald mannvirkja heldur t.d. til þess að færa útlit mannvirkja í upprunalegt horf.
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2026.
Hveragerðisbær býr yfir sérstökum byggingararfi sem endurspeglar sögu bæjarins, jarðhitanýtingu, frumkvöðlastarf og þróun samfélagsins frá upphafi byggðar. Með því að setja reglur um styrki til húsverndar vill bæjarfélagið styðja og hvetja markvisst við varðveislu þeirra mannvirkja sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi og eru mikilvæg fyrir sjálfsmynd og sérstöðu bæjarins. Vel hirt og varðveitt hús styrkja ásýnd bæjarins, auka aðdráttarafl svæðisins og geta haft jákvæð áhrif á verðmæti nærliggjandi fasteigna. Með styrkjum til húsverndar er því verið að styðja við sameiginleg gæði sem nýtast íbúum og samfélaginu öllu. Markmiðið er að stuðla að vandaðri endurgerð og viðhaldi og hvetja húseigendur til að taka þátt í sameiginlegri ábyrgð á vernd byggingararfs Hveragerðisbæjar. Reglur um styrki til húsverndar.