Fara í efni

Skrifað undir samninga um úrgangsþjónustu við Terra ehf.

Gísli Þór Arnarsson Framkvæmdarstjóri Terra og Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri Hveragerðisbæjar taka…
Gísli Þór Arnarsson Framkvæmdarstjóri Terra og Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri Hveragerðisbæjar takast í hendur við undirritun þann 22. júlí 2026.

Skrifað var undir samning um úrgangsþjónustu við fyrirtækið Terra ehf. þann 22. Júlí. Terra tekur þá að sér alla úrgangsþjónustu fyrir bæði íbúa og stofnanir bæjarins. Það voru þeir Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og Gísli Þór Arnarsson Framkvæmdarstjóri Terra ehf sem skrifuðu undir. Samningurinn tekur gildi þann 1. ágúst 2026 og gildir til næstu þriggja ára en með möguleika á framlengingu í fimm ár, eitt ár í senn.

Terra ehf hefur starfað að úrgangs- og endurvinnslumálum frá árinu 1984 og er í dag eitt stærsta fyrirtæki á því sviði á Íslandi. Fyrirtækið vinnur með, einstaklingum, opinberum aðilum og fyrirtækjum að úrgangsmálum þar sem áhersla er lögð á umhverfisvæna úrgagnsstjórnun með það að markmiði að koma öllum þeim efnum sem falla til í viðeigandi farveg.

Almenningur ætti að verða lítið var við breytingarnar þar sem ekki verður skipt um tunnur eða gerðar aðrar sýnilegar breytingar á þjónustunni. Tæming á almennri sorptunnu og lífrænum úrgangi færist þó fram um eina viku, úr 17.-18. ágúst yfir á tímabilið 10.-14. ágúst.

Ein breyting á fyrirkomulagi þjónustunnar er sú að Terra ehf. áskilur sér allt að fimm virka daga til að tæma hvern úrgangsflokk. Gert er þó ráð fyrir að tæming fari að jafnaði fram á um tveimur dögum, en hún getur átt sér stað hvenær sem er innan þess tímabils.

Gefið hefur verið út nýtt sorphirðudagatal sem nálgast má hér

Þegar svona umskipti verða getur tekið tíma fyrir nýtt fyrirkomulag að komast í fastar skorður. Komi upp einhverjir hnökrar í upphafi bendum við íbúum á að hafa samband við okkur í síma 483 4000 eða á  mottaka@hveragerdi.is.  


Síðast breytt: 24. júlí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?