Fara í efni

Sérkennslustjóri í Óskalandi Hveragerði

Leikskólinn Óskaland verður 9 deilda leikskóli frá og með hausti 2025 með 140- 160 börn á aldrinum 1.- 5 ára. Auglýst er eftir sérkennslustjóra til starfa í 100 % stöðu. Leitað er að lausnamiðuðum og ráðagóðum einstaklingi með brennandi áhuga á vellíðan og farsæld barna, framsækinni skólaþróun og framúrskarandi leikskólastarfi.

Í leikskólanum Óskalandi er leikurinn meginnámsleið barnsins, aðalkennsluleið kennarans og þungamiðja leikskólastarfsins. Börnin fá tækifæri til að leika sér á eigin forsendum, læra á umhverfi sitt, tjá tilfinningar og þróa félagsleg tengsl við önnur börn og kennara.  Í öllum leik vinna börn með hugmyndir sínar og öðlast jafnframt nýja þekkingu og færni. Í leik eflist þroski barna, bæði líkamlegur og andlegur.

Einkunnarorð Óskaland eru: Leikur, lífsgleði og lærdómur

Helstu verkefni og ábyrgð

Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati stoðþjónustunnar í leikskólanum í samráði við leikskólastjóra

  • Vinnur að einstaklingsnámskrá barna sem á þurfa að halda
  • Er faglegur umsjónarmaður stoðþjónustunnar í leikskólanum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans
  • Vinnur í nánu samstarfi við deildarstjóra, foreldra/forráðamenn barna sem njóta stoðþjónustu í leikskólanum og situr fundi og viðtöl með þeim
  • Stýrir stoðþjónustuteymi leikskólans
  • Er tengiliður leikskólans við ýmsa fagaðila utan leikskólans
  • Er tengiliður leikskólans í þjónustu í þágu farsældar barna skv. lögum nr. 86/2021 og tekur þátt í þróun og innleiðingu laganna
  • Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari, þroskaþjálfi, iðjuþjálfi eða önnur sambærile menntun sem nýtist í starfi
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi framhaldsmenntun í sérkennslufræðum eða öðru því sem nýtist í starfi
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á lögum um farsæld barna
  • Reynsla af stjórnun er æskileg
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla í starfi með leikskólabörnum
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði

Fríðindi í starfi

  • Sundkort
  • Stytting vinnuvikunnar.

Um framtíðarstarf er að ræða og 100% starfshlutfall.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 25.05.2025. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku) þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Auk þess skulu prófskírteini fylgja með umsókninni. Launakjör taka mið af kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð aldri, kyni, uppruna eða fötlun.

Frekari upplýsingar um starfið veita Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólastjóri og Eva Hrönn Jónsdóttir aðstoðar leikskólastjóri á netfangið: oskaland@hveragerdi.is og í síma: 4834139.

Sótt er um starfið á íbúagátt Hveragerðisbæjar undir umsóknum > mannauðsmál > almenn starfsumsókn.

Hlekkur:https://hveragerdi.ibuagatt.is/login.aspx


Síðast breytt: 12. maí 2025
Getum við bætt efni síðunnar?