Fara í efni

Regnbogagatan Skólamörk

Regnbogagatan Skólamörk - ljósmynd Njörður Sigurðsson
Regnbogagatan Skólamörk - ljósmynd Njörður Sigurðsson

Í tilefni Hinsegin daga 2023 - menningar-, mannréttinda- og margbreytileikahátíð var Skólamörk gerð að regnbogagötu með vaskri framgöngu sjálfboðaliða sem máluðu á Skólamörkina ,,Progress Pride" fánann frá árinu 2018 sem byggður er Regnbogafánanum frá árinu 1978 og hefur lengi verið tákn samfélg samkynhneigðra og í seinni tíma margbreytileikans og almennri réttindabaráttu. 

Um er að ræða samfélagsverkefni sem sjálfboðaliðar í Hveragerði unnu í samstarfi við Hveragerðisbæ. 

Á vef samtaka 78 má finna eftirfarandi upplýsingar um Regnbogafánann, ritað af Kristínu Ómarsdóttir og Þresti Brynjarssyni:

Árið 1978 hannaði og saumaði San Francisco-búinn Gilbert Baker fána með röndum regnbogans. Litirnir áttu að tákna samfélag samkynhneigðra. Á tuttugu árum hefur fáninn orðið þekktari sem tákn þeirra en bleiki þríhyrningurinn sem um langt skeið hefur verið notaður í réttindabaráttunni.

Sögu bleika þríhyrningsins má rekja til Þýskalands nasismans þegar hommar voru látnir bera merki með bleikum þríhyrningi í fangabúðum nasista. Árið 1989 vakti regnbogafáninn þjóðarathygli í Bandaríkjunum þegar leigjandi vann mál gegn leigusala sem hafði bannað honum að flagga fánanum af svölum íbúðar sinnar í Vestur-Hollywood. Nú er regnbogafáninn viðurkenndur af Alþjóðlegu fánanefndinni og blaktir við hún á hátíðisdögum samkynhneigðra um allan heim.

Litir hafa löngum verið mikilvægir í sögu lesbía og homma. Á Viktoríutímanum í Englandi var græni liturinn tengdur við samkynhneigð. Fjólublár varð tákn fyrir baráttu samkynhneigðra seint á sjöunda áratugnum og vinsælt slagorð þeirra tíma var „Purple Power“. Bleikt er eins og áður var nefnt liturinn í bleika þríhyrningnum og hefur líka á ýmsum tímum átt samleið með samkynhneigðum. Gilbert Baker notaði upphaflega átta liti í fánann sinn: bleikan, rauðan, appelsínugulan, gulan, grænan, bláan, indigo og fjólubláan. Baker sagði þessa liti tákna kynhneigð, líf, lækningu, sól, náttúru, list, jafnvægi og anda, og að þeir vísuðu í landið handan regnbogans í Galdrakarlinum í Oz. Þegar Baker hélt af stað með fyrsta fánann sem hann hafði saumað og litað í höndunum í fánaverksmiðju til þess að láta fjöldaframleiða hann, reyndist liturinn „hot pink“ ekki vera fáanlegur. Fyrsta útgáfa fánans var því með sjö röndum.


Síðast breytt: 11. ágúst 2023
Getum við bætt efni síðunnar?