Fara í efni

Rafræn meðmælasöfnun opnuð vegna sveitarstjórnarkosninga

Yfirkjörstjórn Hveragerðisbæjar hefur opnað fyrir rafræna meðmælasöfnun fyrir framboð í sveitarstjórnarkosningum á vef Ísland.is. Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar | Ísland.is

Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar. Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu. Hér er sniðmát að söfnun meðmæla á pappír sem framboð geta nýtt sér.

Hægt er að mæla með framboðum á vef Ísland.is ef meðmælasöfnun hefur verið stofnuð af framboði.
Mæla með framboði í sveitarstjórnarkosningum 2026 | Ísland.is

Yfirkjörstjórn Hveragerðisbæjar.


Síðast breytt: 3. mars 2026
Getum við bætt efni síðunnar?