Opnun ljósmyndasýningar um sögu Hveragerðis
10.07
Frétt
Ljósmyndasýningin Hveragerði og Hvergerðingar verður opnuð mánudaginn 13. júlí klukkan 17 í verslunarmiðstöðinni Sunnumörk.
Sýningin er sett upp í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar og segir sögu Hveragerðis og Hvergerðinga í myndum frá upphafi byggðar til okkar daga. Sýningin telur 170 myndir og er unnin fyrir Hveragerðisbæ af Ívari Gissurarsyni útgefanda og íbúa í Hveragerði.
Verið öll hjartanlega velkomin á opnunina.
Hér fyrir neðan má sjá efnisyfirlit sýningarinnar.

Síðast breytt: 13. júlí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?