Fara í efni

Nýtt áskriftarkerfi fyrir frístund og mötuneyti

Hveragerðisbær hefur tekið upp áskriftarkerfi frá Wise fyrir umsóknir um vist í Frístund og skráningu í mötuneyti Grunnskólans í Hveragerði. Forráðarmenn barna sækja um í gegnum vefslóðina - Umsóknir - Hveragerði – ekki inn á íbúagáttinni. Skráning krefst rafrænna skilríkja eða auðkennisappsins.

FRÍSTUND

Skráning í Frístund er líkt og áður fyrir skólaárið sem er að hefjast.
Nánari upplýsingar um Frístund má finna á vef þeirra – www.bungubrekka.hvg.is

MÖTUNEYTI GRUNNSKÓLANS Í HVERAGERÐI

Núverandi skráningar í mötuneyti Grunnskólans í Hveragerði eru ekki lengur gildar og þarf að skrá barn aftur í mat og í mjólkur- og ávaxtaáskrift fyrir upphaf skólaársins. Eftir skráningu mun hún gilda á milli skólaára eins og áður var. Umsóknir - Hveragerði.

ATH skrá þarf barn í hádegismat þó hann sé gjaldfrjáls.

Vegna ofnæmis / óþols barna

Starfsfólk mötuneytis óskar eftir því að forráðarmenn skili inn vottorði um ofnæmi og óþol með umsókn. Einnig er óskað að þeir gefi sig fram við matráð í mötuneyti í byrjun skólaárs. Er það gert til að auka öryggi barna með ofnæmi/óþol með (sjónrænni) tengingu starfsmanna við þau.


Síðast breytt: 13. ágúst 2026
Getum við bætt efni síðunnar?